fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Pressan

Ný veira í Kína er bara „einu skrefi frá“ að skapa nýjan heimsfaraldur

Pressan
Mánudaginn 16. júní 2025 03:34

Kórónuveiran kom fyrst fram í Wuhan í Kína. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn segja að kórónuveira, sem greindist í Kína, geti hrundið næsta heimsfaraldri af stað. Veiran, sem heitir HKU5-CoV-2, er aðeins einni „lítilli“ stökkbreytingu frá að geta borist í fólk og þannig valdið banvænum sýkingum sem gætu orðið fjölda fólks að bana.

Express skýrir frá þessu og segir að veiran, sem er náskyld MERS, sem er banvæn veira sem verður um þriðjungi þeirra sem smitast að bana,  heiti HKU5-CoV-2 og hafi uppgötvast á kínversku rannsóknarstofunni í Wuhan, sem hefur verið sökuð um að hafa verið uppspretta COVID-19 heimsfaraldursins.

Vísindamenn við Washington State háskólann gerður tilraunir til að sjá samspil nýju veirunnar við mannsfrumur. Michael Letko, veirufræðingur og meðhöfundur rannsóknarinnar, sagði að rannsóknin hafi leitt í ljós að veiran sýki frumur og að smávegis breyting á prótínum á yfirborði veirunnar geti gert henni kleift að bindast ACES2 mannsfrumum en þær eru í hálsi, munni og nefi okkar.

HKU5-CoV-2 fannst í hluta af mörg hundruð leðurblökum sem sýni voru tekin úr í Kína.

Eins og staðan er núna, breiðist veiran aðeins út hjá leðurblökum en sérfræðingar óttast að stjórnlaus verslun með villt dýr í Kína geti aukið líkurnar á að hún stökkbreytist og verði þar með fær um að berast á milli fólks.

Letko sagði að líkindin á milli MERS og HKU5-CoV-2 séu ákveðið áhyggjuefni. Hann benti á að engin sönnun sé fyrir að veiran hafi borist í fólk fram að þessu en sá möguleiki sé til staðar og því þurfi að fylgjast vel með þróun mála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu

Fór í fyrstu heimsóknina til tengdaforeldranna – Eiginmaðurinn hafði gleymt að segja henni frá einu mikilvægu
Pressan
Í gær

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm

Hún elskaði þá, myrti og hirti tryggingaféð – Saga Svörtu ekkjunnar sem var þó ekki alslæm
Pressan
Í gær

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)

Tíu klassísk mistök sem karlar gera á fyrsta stefnumótinu (og hvernig er hægt að forðast þau)
Pressan
Í gær

Er þögn góð fyrir þig?

Er þögn góð fyrir þig?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust

Sat líka í sæti 11A og lifði af flugslys þar sem yfir 100 fórust
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins

Dóttir Ásu og Rex skipti um skoðun áður en heimildarþættirnir fóru í loftið – Þessu trúir hún í dag í ljósi staðreynda málsins