Yfirvöld á Mallorca hyggjast fjarlægja 1.700 sólarbekki af ströndum eyjunnar til að búa til meira rými fyrir heimamenn en þeir hafa kvartað sáran undan plássleysi á ströndunum vegna ágangs ferðamanna og mikils fjölda sólbekkja.
The Independent skýrir frá þessu og segir að ákveðið hafi verið að fækka sólbekkjum um 20% fyrir 2026.
Það spilar einnig inn í þessa ákvörðun að strendurnar fara minnkandi vegna ágangs sjávar en aðalástæðan er þó óánægja heimamanna með stöðu mála.