fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Fyrrum lögregluforingi flúði úr fangelsi á ævintýralegan hátt

Pressan
Fimmtudaginn 5. júní 2025 03:15

Hér er hann á leið út úr fangelsinu. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýna mann með svarta derhúfu, í svörtum stuttermabol, svörtum buxum og einhverju sem líkist vesti lögreglumanns. Hann snýr baki í myndavélarnar og fangelsinu sem hann er nýkominn út úr.

En maðurinn ætti í raun að vera hinum megin við fangelsismúrana því hann á að vera að afplána dóma fyrir morð og nauðgun í þessu fangelsi í Arkansas í Bandaríkjunum.

En honum tókst að flýja og hann er ekki bara einhver maður út í bæ. Hann heitir Grant Hardin og er 59 ára. Hann hafði verið í fangelsi síðan í október 2017 en þá játaði hann að hafa myrt hinn 59 ára James Appleton.

CNN segir að lögreglan geri nú mikla leit að Hardin sem var yfirmaður í lögreglunni þegar hann myrti Appleton. Hann skaut hann í höfuðið og geymdi líkið í bíl. Lögreglan fann líkið og Hardin játaði morðið. Hann var dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir það.

Þetta hljómar svo sem eins og mörg önnur ofbeldismál, sem við heyrum um í Bandaríkjunum, en það gerir þetta mál auðvitað óvenjulegt að Hardin var lögreglumaður og að hann hlaut annan dóm síðar. Eftir að hann var dæmdur í fangelsi var DNA hans skráð í gagnagrunn Arkansas yfir afbrotamenn. Þá birtust upplýsingar á skjánum um að DNA hans passaði við DNA manns sem nauðgaði grunnskólakennara 1997 og einnig við annað nauðgunarmál. Hann var dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir þessi tvö mál.

Sem sagt, 80 ára fangelsisdómar yfir honum og það ætti auðvitað að þýða að hann verði í fangelsi til æviloka en honum tókst nýlega að flýja og leikur nú lausum hala.

Honum tókst að flýja skömmu eftir að tíu öðrum föngum tókst að flýja úr fangelsinu. Tveir þeirra leika enn lausum hala en 13 manns hafa verið handteknir vegna flóttans, þar á meðal einn starfsmaður lögreglunnar.

BBC segir að litlar upplýsingar hafi fengist um hvernig Hardin bar sig að við flóttann annað en að hann klæddist fatnaði sem líkist einkennisfatnaði lögreglumanna. Á upptökum sést hann ganga með kerru sem í voru kassi og hlutir sem virðast vera úr tré.

Lögreglan telur að hann hafi einfaldlega gengið út í gegnum vaktað hlið þar sem allir eiga að gera grein fyrir sér og ferðum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar
Pressan
Í gær

Var mörg ár á dauðadeild en lést svo í eldsvoða á þriðjudag

Var mörg ár á dauðadeild en lést svo í eldsvoða á þriðjudag
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lykilmaður í fremstu víglínu Rússa drepinn langt inni í Rússlandi

Lykilmaður í fremstu víglínu Rússa drepinn langt inni í Rússlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja

Manga-teiknimynd veldur ótta í Japan – Ferðamenn flýja