CBS News skýrir frá þessu og segir að Snider hafi verið stungin til bana á heimili sínu í Calumet City, sem er úthverfi í Chicago. Það var eiginmaður hennar, Paul Snider, sem fann hana látna klukkan 23.10 þann 12. nóvember.
Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið stungin 125 sinnum.
Grunur beindist strax að Barbier en hann var hins vegar aldrei ákærður þar sem sönnunargögnin í málinu þóttu ekki nægilega góð til að hann myndi verða sakfelldur.
Lögreglan hóf að rannsaka málið á nýjan leik í desember 2022 og var fjöldi vitna yfirheyrður og sönnunargögn voru tekin til skoðunar á nýjan leik.
Fatnaður og lak voru send til nákvæmrar rannsóknar hjá Illinois State Crime Lab og í mars 2023 fékk lögreglan heimild hjá dómstól til að gera húsleit heima hjá Barbier og taka DNA-sýni úr honum.
DNA-sýnið úr honum sýndi svörun við því DNA sem fannst á fatnaði Snider og lakinu.
Barbier var handtekinn í síðustu viku og færður fyrir dómara. Að þinghaldinu loknu sagði Paula Larson, dóttir Paul og Karen Snider, að faðir hennar hafi alla tíð haldið því fram að Barbier hefði myrt eiginkonu hans. Paul Snider lést 1989.
„Ég átti enga von á að við myndum nokkru sinni komast svona langt. Ég trúði því ekki að DNA-svörun myndi fást, því það var ekki hægt á þessum tíma. Ég er mjög þakklát fyrir að fatnaðurinn var geymdur á svo öruggan hátt,“ sagði Paula.
Barbier var fjölskylduvinur en hann hafði unnið með Paul við lagningu járnbrautarteina.
Barbier var einn kistuberanna við útförina og samkvæmt því sem kemur fram í dómskjölum þá var hann með skurði á höndum þá.