fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Pressan

„Við verðum að fara að gera ráð fyrir að við séum ekki ein. Spurningin er hversu margir eru þarna uppi?“

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 20. febrúar 2022 22:30

Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir áhugamenn um fljúgandi furðuhluti segja að árið í ár geti jafnvel markað tímamót hvað varðar skilning okkar á fljúgandi furðuhlutum og því hversu alvarlega mál þeim tengd eru tekin.

Ákveðin tímamót urðu á síðasta ári þegar bandarísk stjórnvöld birtu skýrslu um mörg hundruð tilvik þar sem hermenn hafa séð fljúgandi furðuhluti. Sumt af þessu var hægt að skýra en sumt var ekki hægt að skýra og upptökur frá hernum sýna hluti fljúga á þannig hátt að ekki er vitað til að núverandi tækni okkar mannanna geri slíkt flug kleift.

Í nýlegri umfjöllun The Guardian um málið er þeirri spurningu varpað fram hvort Bandaríkjamenn fari nú loks að taka fljúgandi furðuhluti alvarlega.

Haft er eftir Nick Pope, sem starfaði við rannsóknir á tilkynningum um fljúgandi furðuhluti fyrir breska varnarmálaráðuneytið á tíunda áratug síðustu aldar, að hann sé sannfærður um að árið í ár muni breyta miklu varðandi þennan málaflokk. Hann sagðist telja að nú sé svo komið í Bandaríkjunum að alvöru áhugi sé fyrir að taka á málum af þessu tagi.  Hann sagðist telja að yfirheyrslu fari fram fyrir þingnefndum á árinu um mál tengd fljúgandi furðuhlutum og að fleiri ljósmyndir og upptökur frá Bandaríkjaher verði gerðar opinberar auk tilheyrandi skjala. Hann sagðist einnig reikna með að fleiri vitni stígi fram og segi frá upplifun sinni, þetta verði flugmenn farþegaflugvéla, herflugmenn, fólk sem starfar við ratsjáreftirlit og leyniþjónustumenn.

Ætla að skanna himininn

Á vegum Galileo Project er verið að koma upp neti fullkominna sjónauka sem munu skanna himininn í leit að fljúgandi furðuhlutum. Rúmlega 100 vísindamenn taka þátt í verkefninu sem fer af stað í sumar. Einn þeirra er Avi Loeb, prófessor við Harvard háskóla. Hann sagði að ætlunin sé að gera niðurstöður verkefnisins opinberar.

Innrauðar myndavélar munu mynda himininn allan sólarhringinn. Þær eru með ýmsum skynjurum til að sjá ósýnilega hluti. Tölva mun síðan nota gervigreind til að greina gögnin sem aflað verður og mun hún leiða hluti á borð við flugvélar, dróna, loftsteina og fugla hjá sér. Sagði Loeb að athyglin muni beinast að hlutum sem „eru ekki manngerðir.“

Leonard David, höfundur bókarinnar „Moon Rush: the New Space Race, og fréttamaður hefur fylgst með geimiðnaðinum áratugum saman. Hann sagði að nú sé frábært að vera uppi því eitthvað sé að gerast. „Þú getur ekki verið með svo margt fólk við rannsóknir án þess að það skili einhverju,“ sagði hann.

„Á einhverjum tímapunkti munum við hafa aflað nægilegra vísindalegra gagna sem styðja að líkurnar á að við hér á jörðinni séu bara nokkuð algeng og að það sé fullt af menningarsamfélögum í geimnum. Við verðum að fara að gera ráð fyrir að við séum ekki ein. Spurningin er hversu margir eru þarna uppi?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta hefur ekki gerst í bandarísku bílaborginni frá árinu 1957

Þetta hefur ekki gerst í bandarísku bílaborginni frá árinu 1957
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikil sorg eftir dauða 10 ára drengs sem varð fyrir skelfilegu einelti

Mikil sorg eftir dauða 10 ára drengs sem varð fyrir skelfilegu einelti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leyniskyttan sem setti heimsmet skýrir frá – Svona langan tíma tók þetta

Leyniskyttan sem setti heimsmet skýrir frá – Svona langan tíma tók þetta
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kínverski rafbíllinn sem gerir aðra bílaframleiðendur skíthrædda

Kínverski rafbíllinn sem gerir aðra bílaframleiðendur skíthrædda
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn

Fjársjóðsleitin gekk fullkomlega upp – Síðan reið áfallið yfir leitarmenn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann

Lést tveimur mánuðum eftir að erfðabreytt svínsnýra var grætt í hann
Pressan
Fyrir 6 dögum

Skaut lögreglumann með lásboga

Skaut lögreglumann með lásboga
Pressan
Fyrir 6 dögum

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið