fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Köttur smitaður af COVID-19

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 30. mars 2020 19:00

Myndin úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Belgískur köttur er smitaður af COVID-19 kórónuveirunni. Talið er að hann hafi smitast af eiganda sínum. Þetta segir Steven Van Gucht einn af æðstu yfirmönnum belgískra heilbrigðisyfirvalda.

Samkvæmt frétt The Brussels Times þá var kötturinn rannsakaður eftir að hann fór að sýna einkenni COVID-19 smits.

„Kötturinn var með niðurgang, uppköst og átti erfitt með andardrátt. Vísindamenn fundu kórónuveiru í skít kattarins.“

Sagði Van Gucht á fréttamannafundi á föstudaginn.

Kötturinn fór að sýna einkenni smits viku eftir að eigandi hans fór að sýna sömu einkenni.

Ekki er vitað um mörg tilfelli í heiminum þar sem kórónuveira hefur borist frá fólki í dýr. Skýrt hefur verið frá einu slíku tilfelli í Hong Kong þar sem hundur smitaðist af COVID-19. Ákveðnar efasemdir hafa þó verið uppi um hvort það var á rökum reist.

En belgísk yfirvöld virðast vera viss í sinni sök. Van Gucht lagði áherslu á að ótrúlega litlar líkur séu á að smit berist úr fólki yfir í dýr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“

„Mér líkaði við hann en hann gat bara fengið fullnægingu við undarlegar aðstæður“
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans

Er þetta í lagi? – Mæðgur fækka fötum á OnlyFans
Pressan
Í gær

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt
Pressan
Í gær

Frægum hundi stolið og hann borðaður

Frægum hundi stolið og hann borðaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“

Fylltust viðbjóði þegar niðurstaðan var kynnt: „Meiri vernd fyrir þetta skrímsli en hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan

Segir Trump eiga verstu tvö ár ævi sinnar fram undan
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“

„Ég vil ekki missa af þeirri framtíð sem við héldum alltaf að við myndum eiga saman“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“

Átakanlegar lýsingar móður eftir að fjögurra ára sonur hennar lenti í hoppukastalaslysi: „Hræðilegasti dagur lífs míns“