fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Neytendur

Þetta eru ódýrustu fiskbúðirnar

Lægsta verðið oftast í Hafnarfirði

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 2. mars 2016 15:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 25 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð mánudaginn 29. febrúar. Kannað var verð á 41 algengum tegundum fiskafurða. Í flestum tilvikum var á milli 25-75 prósenta verðmunur á hæsta og lægsta verði vöru á milli verslana. Fiskikóngurinn, Melabúðin og Fiskbúðin Vegamót Nesvegi neituðu þátttöku í könnuninni.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem ASÍ hefur sent frá sér og birtist hér að neðan. Athygli er vakin á því að hægt er að nálgast niðurstöðurnar í heild sinni í viðhengi hér til hliðar.

Lægsta verðið í Hafnarfirði

Lægsta verðið var oftast að finna hjá Fiskbúð Hafnarfjarðar Helluhrauni og Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnarfirði, eða í 8 tilvikum af 41. Hafið fiskverslun Spöng var með hæsta verðið í 9 tilvikum af 41 og Hafið fiskverslun Hlíðarsmára í 8 tilvikum. Þar á eftir komu verslanirnar Hafið fiskverslun Skipholti, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, og Gallerý fiskur Nethyl í 5 tilvikum.

Flestar vörur á Sundlaugarvegi

Fiskbúðin Sundlaugarvegi átti til flestar vörurnar í könnuninni, eða 32 af 41, þar á eftir komu Fiskbúðin Hafberg Gnoðavogi, Fiskbúðin Hófgerði, Fiskbúðin Trönuhrauni, Litla fiskabúðin Miðvangi og Nóatún sem áttu 31 tegund. Minnst úrval af fiskmeti var hjá Kjöti og fiski Bergstaðarstræti eða aðeins 10 tegundir af 41 og Beint úr sjó Reykjanesbæ átti 16 tegundir.

Munurinn allt að 125 prósent

Munur á hæsta og lægsta verði í könnuninni var frá 31 prósenti upp í 125 prósent. Mestur verðmunur í könnuninni var á meðal kæstri skötu sem var dýrust á 1.690 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Hafberg Gnoðavogi og Hafinu fiskverslun Hlíðarsmára en ódýrust á 750 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Sjávarhöllinni Hólagarði, en það er 940 króna verðmunur, eða 125 prósent. Minnstur verðmunur var á marineruðum laxi í bitum sem var ódýrastur á 2.290 kr./kg. hjá Fiskbúð Hafnarfjarðar Helluhrauni, Litlu fiskbúðinni Miðvangi og Gallerý fisk Nethyl en laxinn var dýrastur á 2.998 kr./kg. hjá Þinni verslun Seljabraut, en það er 708 krónu verðmunur, eða 31 prósent.

Af öðrum tegundum sem í boði eru má nefna að roðflett og beinlaus ýsuflök voru ódýrust á 1.570 kr./kg. hjá Fiskbúðinni Sjávarhöllinni en dýrust á 2.190 kr./kg. hjá Kjöti og fiski Bergstaðarstræti sem gerir 40 prósenta verðmun.

Þessar fiskbúðir tóku þátt

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Kjöt og fisk Bergstaðarstræti, Fiskbúðinni Sundlaugavegi, Kjöt og fisk Bergstaðarstræti, Þinni verslun Seljabraut, Fisk kompaní Akureyri, Fiskbúð Hafnarfjarðar Helluhrauni, Fiskbúðin Hafberg, Samkaupum Úrval Hafnarfirði, Beint úr sjó Reykjanesbæ, Nettó Granda, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Fiskbúðin Sjávarhöllin Hólagarði, Litlu Fiskbúðinni Miðvangi og Háaleitisbraut, Hafinu fiskverslun Hlíðasmára, Spöng og Skipholti, Nóatúni Háaleitisbraut, Fiskbúð Hólmgeirs Þönglabakka, Gallerý fisk Nethyl, Fiskbúðinni Hófgerði, Fiskbúð Sjávarfangs Ísafirði, Fiskbúðinni Mos Mosfellsbæ, Fiskbúð Siglufjarðar og Hagkaupum Kringlunni.,
Fiskikóngurinn, Melabúðin og Fiskbúðin Vegamót Nesvegi neituðu þátttöku í könnuninni.

ASÍ tekur fram að aðeins sé um beinan verðsamanburð að ræða og ekki sé lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Neytendur
24.07.2020

Ertu að fara í sumarfrí? Svona minnkar þú líkur á innbroti

Ertu að fara í sumarfrí? Svona minnkar þú líkur á innbroti
EyjanNeytendur
24.04.2020

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19

Matvöruverð hefur hækkað umtalsvert frá upphafi Covid-19
EyjanNeytendur
12.02.2020

SS minnkar umbúðirnar en verðið hækkar – „Hættur að kaupa“

SS minnkar umbúðirnar en verðið hækkar – „Hættur að kaupa“
Neytendur
09.02.2020

Hvað er málið með örorkubætur?

Hvað er málið með örorkubætur?
EyjanNeytendur
29.07.2019

Icelandair hækkaði fargjaldið í miðri bókun um 42 þúsund krónur – „Er græðgin gengin af göflunum?“

Icelandair hækkaði fargjaldið í miðri bókun um 42 þúsund krónur – „Er græðgin gengin af göflunum?“
EyjanNeytendur
23.07.2019

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“

Kjúklingaáleggið frá Kjarnafæði sagt innihalda 80% grísakjöt – „Skandall drepinn í fæðingu“
EyjanNeytendur
10.05.2019

Launafólk hefur axlað ábyrgð – Nú er komið að fyrirtækjunum: „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“

Launafólk hefur axlað ábyrgð – Nú er komið að fyrirtækjunum: „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“
EyjanNeytendur
06.05.2019

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn

Bíleigendur greiða nær alla útblástursskatta á Íslandi en eru einn minnsti mengunarvaldurinn