fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Matur

Spicy skinkuhorn sem rífa í úr smiðju Berglindar Hreiðars

Sjöfn Þórðardóttir
Sunnudaginn 18. september 2022 19:51

Skinkuhornin hennar Berglindar Hreiðars eiga eftir að slá í gegn enda einstaklega mjúk, með silkikenndri áferð og spice bragði sem rífur í. MYNDIR/BERGLIND HREIÐARS.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það elska allir skinkuhorn og fátt er betra en að eiga gómsætt skinkuhorn í nesti þegar ný skóla- og vinnuvikan hefst. Berglind Hreiðars okkar ástsæli köku- og matarbloggari hjá Gotterí og gersemar prófaði sig áfram með deig með hreinu skyri sem kom alveg ótrúlega vel út auk þess sem hún ákvað líka að prófa að setja mexíkóost með skinkumyrjunni og toppa með osti og chilli pizzakryddi.

„Þessi útkoma er dásamleg og skemmtileg tilbreyting frá þeim klassísku,“ segir Berglind og hvetur lesendur til að prófa þessa.

Spicy skinkuhorn

Skinkuhorn

U.þ.b. 64 stykki

1080 g hveiti

2 pk. þurrger (2 x 11,8g)

50 g sykur

2 tsk. salt

4 egg

260 g hreint Ísey skyr

110 g smjör við stofuhita

250 ml volgt vatn

Fylling og toppur

3 x Skinkumyrja

2 x Mexíkó kryddostur

Rifinn pizzaostur frá Gott í matinn

1 egg + 3 msk nýmjólk til að pensla með

Chilli-pizzakrydd (eða annað krydd sem hentar)

Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið saman með króknum. Pískið saman egg og skyr og bætið út í ásamt smjöri og volgu vatni. Hnoðið stutta stund og færið svo yfir á borðið og hnoðið betur. Penslið stóra skál með matarolíu og setjið deigkúluna þar ofan í og veltið henni um svo hún hjúpist öll olíunni. Plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund (það ætti að tvöfalda stærð sína). Skiptið þá niður í 8 hluta, fletjið hvern út í hring og skerið í 8 sneiðar með pizzuskera. Setjið góða teskeið af Skinkumyrju á hvern hluta ásamt smá Mexíkóosti, rúllið upp, lokið endunum og raðið á bökunarplötur. Pískið saman egg og nýmjólk og penslið skinkuhornin, setjið næst rifinn ost yfir og smá krydd.Bakið við 190°C í 10-13 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa