fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
HelgarmatseðillMatur

Ljúffengur sælkera helgarmatseðill í boðið Gabríels

Sjöfn Þórðardóttir
Föstudaginn 12. ágúst 2022 17:00

Gabríel Kristinn Bjarnason býður hér upp á sælkera helgarmatseðil sem passar vel síðla sumars. MYNDIR/ANTON BRINK.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabríel Kristinn Bjarnason matreiðslumaður, landsliðskokkur  og ungkokkur Norðurlandanna á heiðurinn af fyrsta helgarmatseðlinum í ágústmánuði sem á vel við síðla sumars. Gabríel Kristinn kom, sá og sigraði í keppninni Besti ungkokkur Norðurlandanna sem haldin var í mars í Danmörku. vann jafnframt bronsið í keppninni um Kokk ársins á Íslandi sem haldin var í vor.

Gabríel stendur vaktina á veitingastaðnum Héðinn Kitchen & Bar sem er glæsilegur veitingastaður í 101 Reykjavík þar sem hann leyfir sköpunarhæfileikum sínum að njóta sín í matargerðinni. Gabríel veit fátt skemmtilegra að grilla og útbúa ljúffenga rétti og töfra fram föngulega sælkerarétti sem gleðja bæði bragðlauka og augu.

„Núna er ég að koma aftur til vinnu eftir gott og vel velkomið sumarfrí og er að komast aftur í rútínu á Héðinn Kitchen & Bar þar sem er orðið brjálað að gera og stefnum við að hafa mikið af skemmtilegum kvöldum út árið. Svo er kokkalandsliðið að fara aftur á fullt eftir frí þar sem við stefnum á að fara á heimsmeistaramótið í Lúxemburg í nóvember, þannig það eru stífar æfingar framundan hjá mér þangað til þá,“ segir Gabríel.

Gabríel setti saman fyrir matarvef DV sælkera helgarmatseðil sem á vel við síðla sumars. „Ég valdi þennan einfalda 3ja rétta matseðil vegna þess að þetta eru nokkrar af mínum uppáhalds uppskriftum sem ætti að vera þægilegt að gera heima hvort það sé grillað úti í sólinni eða bara eldað inni í rigningunni.“

Hér fáið þið nokkrar uppskriftir af uppáhalds réttunum hans Gabríels. Þetta er gómsætur forréttur, aðalréttur með girnilegu meðlæti og ásamt dýrðlegum eftirrétti sem á eftir að slá í gegn. Þessar uppskriftir eru allar settar saman af mikill ástríðu og natni.

„Fyrst er ég með einfalt heimagert ferskosta krem með steinselju og sýrðum rjóma borið fram á grilluðu brauði, ólífuolíu og tómatsalati. Það er skemmtilegt sem forréttur eða bara sem ljúffengur réttur til að fá sér í hádeginu.“

Gabríel Kristinn Bjarnason landsliðskokkur, með helgarmatseðilinn

 

 

 

 

 

 

Ferskosta krem

Ostur

2 l mjólk

600 g súrmjólk

50 g ferskur sítrónusafi

Aðferð:

Byrjið á því að setja allt saman í pott og leyfið að malla á miðlungs hita þangað ostur byrjar að myndast á yfirborðinu. Þá er gott er að skafa í botninn með sleikju inn á milli svo brenni ekki í botninn. Þegar þykkur ostur er kominn, þá megið þið sigta frá með sigti og klút til að fjarlæga alla mysuna. Þegar öll mysan er kominn frá þá sitjum við uppi með ferskost.

Ostakrem

500 g ferskostur

150 g 36% sýrður rjómi

20 g fersk steinselja

Zest af einni sítrónu

Safi úr hálfri sítrónu

Smakkið til með salti og pipar

Aðferð:

Setjið allt hráefnið saman í matvinnslu vél og blandið vel saman þangað til  blandan verður silkimjúk.

Tómat salat

1 stk. askja kirsuberjatómatar

1 stk. saxaður skalotlaukur

30 g saxaður graslaukur

Góð ólífuolía

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Byrjið á því að skera tómatana í 4 bita og blandið saman við rest í skál. Gott er að rispa zest af sítrónu yfir í endann.

„Í aðalrétt er ég með pönnusteikta stórlúðu á beini, sem er hægt að fá helstu fiskbúðum

landsins, burre blanc og bok choi og brokkólin salat með pikkluðum rifsberjum, noisett

heslihnetum og pestó.“

Lúða

1 steik af stór lúðu á beini

100 g smjör

2 hvítlauksgeirar

Ferskt timian eftir smekk

Aðferð:

Byrjið á því að hita pönnu þangað til hún fer að rjúka, þurfið að hafa hana vel heita til að fá

góða brúningu á steikina, setjið er ólífuolíu á pönnuna og leggið fiskinn á. Steikið 2-4 mínútur á hverri hlið, fer svolítið eftir pönnu. Síðan er steikinni snúið við, bætið þá við smjöri, hvítlauk og timian og gott er að maska fiskinn vel með skeið til að fá fullkomna brúningu. Setjið steikina í bakarofn í rúmar 5 mínútur á 180°C hita eða þangað til hitastigið í miðjunni er komið upp í 53°C, takið þá steikina út og leyfið að hvíla í minnsta kosti 5 mínútur.

Burre blanc

50 g hvítvín

50 g hvítvíns edik

2 msk. saxaður skalotlaukur

50 g g rjómi

250 g kalt smjör (skorið í kubba)

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Byrjið á að setja hvítvín og hvítvíns edik með lauk í pott og leyfið að sjóða niður í 5 mínútur. Bætið síðan við rjóma og sjóðið í aðrar 5 mínútur. Síðan er smjöri bætt við og einum og einum kubb pískað saman við í einu. Svo þegar sósan er komin saman er lauknum sigtað frá og kryddið til með salt og pipar.

Steinselju og sólkjarnafræ pestó

60 g steinselja með stilk

50 g bökuð sólkjarnafræ

50 g Feykir ostur rifinn (eða parmesan)

2 stk. hvítlauksgeirar

Safi úr hálfri sítrónu

2 dl repjuolía

Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Setjið allt hráefnið saman í matvinnslu vél og blandið vel saman.

Pikkluð rifsber

1 box rifsber ( búið af taka af stilk)

50 g hvítvíns edik

50 g sykur

50 g vatn

2 g salt

Aðferð:

Setjið saman hvítvín, sykur og vatn í pott og sjóðið saman þangað til sykurinn bráðnar.  Síðan blöndunni hellt yfir rifsberin.

Noisett heslihnetur

500 g smjör

200 g bakaðar heslihnetur

Aðferð:

Byrjið á því að hita bakarofninn í 160°C. Síðan eru heslihneturnar bakaðar í ofninum þangað til heslihneturnar eru orðnar gullinbrúnar, svo er gott að saxa þær í þykka bita

áður en er sett í brúnaða smjörið. Setjið smjör í pott og leyfið að bull sjóða þangað til að smjörið er orðið brúnt með hnetukeim, þá er smjörið tekið af hitanum og leyfið því að kólna aðeins áður en þið bætið hnetunum við.

Heitt bok choi og brokkolíni salat

1 búnt af brokkólíni

Boc choi eftir smekk

Aðferð:

Hitið pönnu með ólífuolíu. Bætið síðan við boc choi og brokkolíni steikið á pönnu þangað til eldað í gegn. Síðan er gott að setja pestó á botninn á disknum sem á að bera salatið fram á, síðan boc choi og brokkolínið ofan á og dressað með rifsberjum og noisett heslihnetum.

„Í eftirrétt er ég með hvítsúkkulaði brownie sem mér finnst ekkert eðlilega góð og nota mikið í veislum og á Héðinn Kitchen & Bar, fólk er mikið að spyrja um uppskriftina og ákvað ég loksins að deila þessari uppskrift með ykkur. Í henni er ég með fersk ber og þeyttan 36% sýrðan rjóma, það hljómar kannski furðulega að hafa sýrðan rjóma ofan á köku en þetta smell passar á móti allri sætunni í kökunni.“

Hvítsúkkulaði brownie

150 g smjör

210 g hvítt súkkulaði

200 g sykur

40 g glúkósi (hægt er að nota hunang í staðinn)

2 g salt

100 g rjómi

3 stk. egg

90 g hveiti

Aðferð:

Byrjið á því að bræða smjör og súkkulaði saman í pott. Á meðan setjið saman sykur, glúkósa, salt og rjóma í annan pott og bræðið saman. Þegar blöndurnar eru bráðnar í báðum pottum  eru þær settar saman í skál. Bætið síðan hveiti saman við og hrærið saman með písk, þegar þið blandið hveitinu er vel blandað við þá er setjið þið eitt egg í einu saman við þangað til að allt hráefnið er komið saman. Að lokum blöndunni hellt í eldfast mót klædd með smjörpappír í botninn og bakað í bakarofni við 140°C hita í 25 mínútur.

Þeyttur sýrður rjómi

250 g 36% sýrður rjómi

Aðferð:

Þeytið sýrða rjómann í skál þangað til að hann verður silkimjúkur og þykkur.

Mjög mikilvægt að þið séuð með 36% sýrðan rjóma því annars þeyttist hann ekki.

Njótið vel og góða helgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa