fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Matur

Ketó – með eða á móti?

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 24. nóvember 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinsældir ketó-lífsstílsins hafa vart farið framhjá fólki en sitt sýnist hverjum um ágæti fæðunnar. Við fengum tvo álitsgjafa til að varpa ljósi á ólík viðhorf sín þegar kemur að þessu eldheita málefni.

MEÐ

Sjaldan svangur og sykurþörfin horfin

Tónlistarmaðurinn og veitingahúseigandinn Daniel Oliver hóf sinn ketó-lífsstíl fyrir rúmum fjórtán mánuðum. Hann segir fyrstu dagana hafa tekið aðeins á en síðan hafi kílóin farið hrynja af og líðanin öll breyst til betri vegar. „Það var svoldið erfitt fyrstu dagana þegar líkaminn var að klára kolvetnabirgðirnar og hreinsa sig af öllum sykri, en þegar maður kemst í „ketósu“ þá skiptir líkaminn út glúkósa, það er að segja kolvetnum, sem orkugjafa fyrir fitu sem þá verður aðalorkugjafi líkamans. Ég hef aldrei fundið neitt mataræði sem hentar mér svona vel fyrr en núna. Mataræði mitt samanstendur að mestu leyti af grænmeti, fisk, stundum kjöti, hollri fitu eins og ólífuolíu, avókadó, smjöri og rjóma og svo osti! endalaus ostur – slef!

Ég elska lasanja og heimagerðar kjötbollur í sósu. Ég er líka rosalegur pítsukall. Til dæmis þegar ég geri lasanja nota ég oft góðan og harðan ost í staðinn fyrir plöturnar. Eða ég nota kúrbít eða bý til mitt eigið pasta úr möndlumjöli eða öðru mjöli. Það er auðvelt að finna leiðir til að gera hvaða mat sem er,“ segir matgæðingurinn. „Ég er mjög duglegur að elda skemmtilegan mat á ketó. Ég nota möndlumjöl, sesammjöl, kókosmjöl og alls konar.

Ég get alveg viðurkennt að þetta hentar ekki öllum, en margir vina minna og fjölskyldumeðlima hafa prófað og margir eru ennþá á þessu og líður vel, en margir hættu. Ég hef tekið pásur af og til og það hefur gengið ágætlega að byrja aftur. Ég verð sjaldan svangur á ketó og sykurþörfin er löngu dauð svo það er ekki erfitt að lifa á þessu mataræði.

Fyrstu máltíð dagsins borða ég í kringum klukkan þrjú og svo þá næstu um átta. Eftir það fasta ég og finnst það ekkert mál. Líkaminn gerir ekki greinarmun á fitunni sem þú ert að borða og fitunni á líkamanum og er ekki að biðja um neitt fyrr en þig vantar eitthvað í kroppinn. Ég finn ekki til hungurs og skipulegg hvenær og hvernig ég borða.

Það leiðinlegasta er nú líklega að skipuleggja máltíðirnar og að reyna að halda mér við mataræðið þegar ég er að ferðast, en ég er nú bara farinn að taka mér pásur þegar ég er í fríi erlendis. En fyrir þá sem hafa áhuga þá mæli ég með að kíkt sé inn á dietdoctor.com en þar má finna allar upplýsingar um ketó og svo auðvitað ketó-grúppuna á Íslandi. Þar eru allir að hjálpast að, gefa ráð, deila sögunum sínum og frábærum uppskriftum.“

Óvenjuleg pítsa.

KLIKKAÐUR KETÓ-PÍTSUBOTN

1½ bolli rif­inn mozzar­ella-ostur

¾ bolli möndluhveiti

2 msk. rjóma­ost­ur

1 tsk. edik

1 egg

½ tsk. salt

Hitið ofn­inn í 200 gráður. Hitið mozzar­ella og rjóma­ost­inn í potti eða ör­bylgju­ofni.Hrærið sam­an uns þeir hafa bland­ast sam­an. Bætið þá við hinum hrá­efn­unum og blandið vel sam­an. Settu vel af ólífu­olíu á hend­urn­ar og flettu deigið út á smjörpapp­ír. Úr þessu ætti að verða pítsa sem er um 20 sentimetrar í þver­mál. Einnig er hægt að nota köku­kefli til að fletja deigið út en þá er betra að setja líka smjörpapp­ír ofan á deigið meðan það er flatt út. Stingið í botn­inn með gaffli og bakið í ofn­in­um í 10–12 mín­út­ur. Þegar botn­inn er til­bú­inn skal taka hann út, setja álegg og sósu ofan á hann og baka síðan aft­ur í 10–12 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er bráðnaður.

Á MÓTI

Áróður og öfgar gera engum gott

Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur segist síður en svo vera fanatískur mótmælandi ketó-mataræðis þótt henni þyki umræðan oft og tíðum ýkt. „Mér finnst það gott að einstaklingar stígi skrefin og geri eitthvað sem þeir telja jákvætt fyrir aukið heilbrigði. Það sem ég óttast með ketó er múgæsingur og að fylgja einhverjum ráðum sem jafnvel eru ekki góð fyrir suma eða bara henta ekki. Við erum mismunandi og því er það þannig að eitt ríkisráð er klárlega ekki lausnin. Það hentar ekki öllum að fara eftir ráðleggingum Landlæknis en það er samt alhliða ráð sem er gefið og tekur á flestum fæðuflokkum sem eru til staðar, síðan þurfum við að finna hvaða hlutföll fæðunnar henta okkur. Það hentar ekki sumum að borða of mikið af korntegundum eða ávöxtum og þá er gott að finna jafnvægi þar. Það er ekki til ein leið sem er „one size fits all“ því miður og ég veit samt að við viljum aukna orku og bætt líkamlegt ástand, svona flest okkar, en við þurfum að finna okkar jafnvægi til að ná því.“

Þurfa einhverjir að forðast ketó?

„Ég mundi ráðleggja öllum konum á barneignaraldri að gæta að fæðuvalinu. Með einhæfari fæðu getur aukist hættan á næringarskorti eins og fólinsýru (B9) sem er til dæmis í ávöxtum, grænmeti, brauði og korntegundum og belgávöxtum. Ef kona á barneignaraldri er ekki með nægjanlegt magn af fólinsýru í byrjun meðgöngu og fær ekki fæðu sem inniheldur fólinsýru eru auknar líkur á fósturskaða s.s. klofnum hrygg. Fólinsýran þarf að vera til staðar í byrjun meðgöngu og konur þurfa aukna fólinsýru á meðgöngu.

Sjálf vinn ég með að setja einstaklinga á alls konar mataræði sem hentar hverju sinni og fer eftir því með hvað við erum að vinna. Það að fara út í mataræði sem er farið að hljóma eins og trúarbrögð gerir mig hálfhrædda. Það eru bara ákveðinn hluti sem heldur þetta út og hinir detta út og fara „oft“ í verra form og ástand en áður en ketó-kúrinn var prófaður. Persónulega mæli ég með því að taka mataræðið föstum tökum og hugsa um hvað við setjum ofan í okkur.

Ég held að við séum að borða, oft og tíðum, vitlaust og of mikið af kolvetnum en það er ekki þar með sagt að við þurfum að sleppa þeim alveg. Ég vinn mikið með einstaklinga með blóðsykursviðkvæmni sem er forstigseinkenni á sykursýki af tegund 2 og þá er oft gott að grípa inn í og keyra kolvetnin niður í smá tíma og finna svo hvaða magn hentar og á hvaða tíma dags. Að sneiða alveg fram hjá þeim held ég að sé ekki rétt.

Staðreyndin er nefnilega sú að ketó er í tísku þangað til það kemur afleysing sem verður ný tískubylgja. Verum skynsöm og finnum hvað hentar hverjum og einum. Það er samt hjákátlegt að fylgjast með ketó-æðinu því það eru svona sjálfskipaðir lestarstjórar sem stjórna samfélagsmiðlum og veita upplýsingar og ráð sem oft er bara alls ekki fyndið. Fólk er tilbúið að láta segja sér og látið prófa alls konar aðferðir, þrátt fyrir að líkamleg einkenni séu að öskra á einstaklinginn að þetta form af fæðuvali henti ekki líkama hans. Hrein fæða er góð og auknar líkur á að með bættri fæðu minnki bólgur og að fólki líði betur. Það að ketó sé svarið við öllu er ekki rétt, en ég hvet alla til að borða hreint og fá sér góða ávexti og auka grænmeti í millimál. Ef það hentar ekki, að finna þá leið og taka ábyrgð á sjálfum sér og ef sú ábyrgð inniheldur að vera á ketó-mataræði þá finnið þið það best sjálf og treystið eigin dómgreind. Ekki láta mata ykkur á áróðri og öfgum það er bara engum hollt.“

KÍNÓASALAT MEÐ SÍTRÓNUDRESSINGU
1 bolli af kínóa
1 ½ bolli vatn
½ tsk. sjávarsalt
kínóa soðið upp úr blöndunni og látið kólna

avókadó skorið í litla bita
1 msk. sítrónusafi
ferskur lax látinn liggja í sítrónusafa í minnst fjórar mínútur eða lengur ásamt avókadó.
1 bolli cherry-tómatar, skornir í tvennt
½ rauðlaukur
½ tsk. rauður þurrkaður chili
1 msk. þurrkað kóríander

DRESSING
safi úr einni sítrónu
1 hvítlauksgeiri
½ tsk. malað cumin
¼ tsk. sjávarsalt
1/3 bolli extra virgin olífuolía

Eftir að kínóa hefur verið soðið og kælt er það steikt upp úr olíu á pönnu ásamt kryddi og lauk. Tómat- og laxablöndunni svo bætt saman við ásamt dressingunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa