fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Átta ráð sem tryggja að þú klúðrir ekki marengstertunni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 14. september 2019 10:30

Tekur á taugarnar Mörgum finnst taugatrekkjandi að baka marengs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marengstertur eru nánast skylda á veisluborði Íslendinga. Marengsinn hefur hins vegar reynst mörgum þyrnir í augum því það þarf allt að ganga upp svo hann klikki ekki. Oft heyrir maður um marengstertur sem falla, bakast ekki eða brenna, en af hverju verður marengs ekki alltaf yndislega brakandi og gómsætur? Fyrir því eru nokkrar ástæður.

Eggin eru óþæg

Þegar kemur að eggjum er langvænlegast til árangurs að hafa þau við stofuhita. Það er hægt að aðskilja þau á meðan þau eru köld en leyfðu svo eggjahvítunum að hvíla á eldhúsborðinu í hálftíma þangað til þær ná stofuhita.

Ekkert plast, takk

Lykillinn að yndislegum marengs er að þeyta hann í tandurhreinni skál. Og þá meina ég TANDURHREINNI. Enginn raki, engin olía, ekki neitt nema eggjahvítur og sykur. Til þess að vera viss um að skálin sé hrein er best að nota skál úr málmi eða gleri. Fita og feiti geta nefnilega sest að í plastskálum, svo vel að maður sér það stundum ekki.

Eggjarauðan vill vera memm

Einn lítill dropi af eggjarauðu eyðileggur marengsinn. Það er best að aðskilja eggjahvíturnar ofan í minni skál og hella þeim síðan ofan í stóru skálina sem þú þeytir marengsinn í. Ef dropi af eggjarauðu leynist með hvítunum er best að ná honum upp úr með eyrnapinna eða smá brauðbita. Sama hvað þú gerir, ekki nota puttana til að veiða hann upp úr – fita og feiti, þið munið! Best er að nota ekki hvítuna ef smá eggjarauða læðist með. Þá komum við aftur að litlu skálinni. Ef þið aðskiljið bara eitt egg í einu þurfið þið ekki að byrja upp á nýtt ef eitt egg er óþægt.

Slakið á sykrinum

Bætið sykrinum hægt saman við eggjahvíturnar, en samt í einni bunu. Ekki dömpa öllum sykrinum saman við – það getur eyðilagt marengsinn.

Þeyta, þeyta, þeyta

Þeytið eggjahvítur og sykur í 15 til 20 mínútur og ekki svindla! Blandan á að vera það stíf að þið getið sett skálina á hvolf án þess að dropi leki niður.

Gefið marengsinum smá búst

Hendið 1 til 2 teskeiðum af lyftidufti í blönduna til að hjálpa marengsinum að lyfta sér. Hann á eftir að þakka ykkur fyrir þetta seinna. Einnig er hægt að setja ögn af Cream of Tartar saman við til flýta fyrir stífingunni.

Brenndur marengs forðast eldinn

Það þarf að baka marengs á lágum hita svo rakinn í blöndunni gufi smátt og smátt upp. Ef hitinn er of hár brennur marengsinn að utan en er eins og tyggjó að innan.

Þolinmæði er dyggð

Ekki rífa marengsinn strax úr ofninum heldur opnið ofnhurðina aðeins og leyfið marengsinum að kólna inni í ofninum. Þá gufar rakinn enn betur upp og marengsinn verður stökkur og góður.

Fullt af lakkrís Þessi marengs er fyrir lakkrísunnendur.

Kornflexmarengs með lakkrísrjóma og lakkríspoppi

Marengs – Hráefni:

4 eggjahvítur
1 bolli sykur
100–150 g kornflex (eftir smekk)
3 tsk. lyftiduft

Lakkrísrjómi – Hráefni:

400 ml rjómi
3-–4 msk. lakkrísduft

Lakkríspopp – Hráefni:

3 bollar poppað popp (engar baunir)
2–3 msk. sætt lakkríssíróp
1/2 tsk. sjávarsalt

Aðferð:

Þeytið eggjahvítur þar til þær freyða. Hellið síðan sykri saman við í einni bunu og þeytið í 15–20 mínútur. Setjið kornflex í aðra skál og kremjið létt með fingrunum. Blandið lyftidufti saman við kornflexið. Blandið þá kornflexinu varlega saman við marengsinn með sleikju. Búið til 2 hringi úr blöndunni á smjörpappírsklædda ofnplötu og bakið við 150°C í 50 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið hann aðeins og leyfið botnunum að kólna inni í ofni. Þeytið rjómann aðeins, blandið duftinu saman við og stífþeytið svo rjómann. Smyrjið rjómanum á annan marengsbotninn og setjið hinn ofan á. Blandið poppi, sírópi og sjávarsalti vel saman og setjið ofan á kökuna.

Snickers og súkkulaðirjómi Þessi er dásamleg.

Lítill marengs með Snickers og súkkulaðirjóma

Hráefni:

4 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 tsk. lyftiduft
500 ml rjómi
2 msk. kakó
3 msk. flórsykur
4 Snickers
60 g dökkt súkkulaði
2 msk. hnetusmjör

Aðferð:

Hitið ofninn í 150°C og klæðið ofnplötur með bökunarpappír. Þeytið eggjahvíturnar í 1 til 2 mínútur eða þangað til þær freyða vel. Bætið sykrinum út í eggjahvíturnar á meðan þið hrærið, um einni matskeið í einu. Þeytið þessa blöndu í 15 til 20 mínútur eða þar til þið getið haldið skálinni á hvolfi og ekki dropi lekur niður. Bætið lyftiduftinu við og hrærið aðeins. Setjið um það bil eina matskeið af blöndunni á ofnplöturnar með góðu millibili. Þið ættuð að fá 12 til 14 kökur. Bakið í 30 mínútur og leyfið kökunum að kólna í ofninum í um það bil tvo klukkutíma. Þeytið rjómann og bætið kakói og flórsykri saman við þegar þið eruð alveg að verða búin að þeyta rjómann.
Skellið góðri slummu af rjómanum á marengskökurnar. Skerið Snickers-stykkin í litla bita og dreifið þeim ofan á rjómann. Bræðið súkkulaðið og drissið því yfir marensinn. Bræðið hnetusmjörið í um það bil 30 sekúndur í örbylgjuofni og drissið því yfir marengsinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa