fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Litli klettur: Engin vandamál, bara verkefni sem þarf að leysa

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 6. september 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Litli klettur er öflugt iðnaðarfyrirtæki sem sinnir margs konar erfiðum verkefnum sem snúa að steinslípun, múrbroti, kjarnaborun og fleiru. „Við erum með öflug verfkæri og bora sem komast í gegnum hvaða vegg eða klöpp sem er. Við vinnum fjölbreytt verk sem fólk leitar til okkar með, enda er mottóið okkar að það séu engin vandamál, bara verkefni sem þarf að vinna. Við erum vanir að bretta upp ermarnar og erum síður en svo hræddir við að verða skítugir á höndunum,“ segir Guðbjartur Jónsson.

12 tonna Palfinger 0389 krani.

Litli klettur fjárfesti í nýjum kranabíl í sumar til þess að geta tekið að sér fjölbreyttari verkefni. „Þetta er afar öflugur 12 tonna Palfinger 0389 krani. Lengdin á krananum er 28 metrar sem gerir okkur auðvelt að komast á staði þar sem þröngt er um svona stóra bíla. Eins og sést á myndinni að ofan getum við lyft yfir húsþök. Í mestu lengd er lyftigeta kranans 300 kíló, en mesta lyftigeta er heil 12 tonn. Ef þú þarft mann í verkefnið þá mætum við að vörmu spori.“

Nei, það er ekki kviknað í …

Stærsti hluti steinslípunar er slípun á nýbyggingum, bæði á lofti og veggjum. Einnig þarf oft að slípa yfirborð í eldri húsum vegna breytinga eða annars. „Við höfum meðal annars slípað hraunaða, steinaða og málaða veggi. Enn fremur höfum við verið að slípa niður flísalím og ýmislegt annað eins og myglusvepp. Það getur komið töluvert af ryki við steinslípun og hér áður fyrr var stundum kallað í slökkviliðið út af öllu rykinu. Fólk hélt að það væri kviknað í húsunum. Í dag hefur tækninni fleygt fram og eru öflugar ryksugur nú orðnar staðalbúnaður hjá öllum okkar starfsmönnum. Slökkviliðsheimsóknum hefur snarfækkað í kjölfarið,“ segir Guðbjartur og hlær.

Fjölbreytt verkefni

„Við hjá Litla kletti erum vel tækjum búnir fyrir kjarnaborun. Við getum borað í loft, veggi og gólf algerlega óháð steypugerð og þykkt. Einnig erum við með margar gerðir af steypusögum. Gildir einu hvort þú þarft að taka fyrir nýjum glugga eða hurðargati, breikka glugga eða hurðargat – eða fjarlægja veggi, gólf eða svalir. Við sögum fyrir þig óháð steypugerð og þykkt. Að auki fræsum við fyrir hita- og rafmagnsrörum og tökum að okkur rifverkefni á léttum veggjum, loftum, gólfum úr timbri, gifsi og vikri.“

Lítil en kröftug

„Við búum yfir margra ára reynslu af afar fjölbreytilegum verkefnum og til að geta verið í fremstu röð í okkar fagi þá höfum við fjárfest mikið í nýjum og góðum tækjum. Við erum meðal annars með sérlega öfluga rafmagnsgröfu sem er nógu lítil til þess að fara inn um venjulegar dyr, en nógu öflug til þess að brjóta upp þrjóskustu klappir sem venjulegar brotvélar bíta ekkert á. Við notuðum hana t.d. í Smáralind til þess að brjóta niður í klöpp fyrir rafmagnsstiga.“

Hjá okkur starfa reyndir starfsmenn sem vinna verkin fljótt og vel. Eitt símtal og við mætum á staðinn og gefum góð ráð eða gott tilboð.

Nánari upplýsingar má nálgast á litliklettur.is

Járnháls 5F, 110 Reykjavík

Sími: 699-0355

Netpóstur: lk@litliklettur.is

Opið er alla virka daga frá 8.00–17.00.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum