fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Tengdu þig við 100% græna orku með Bílahleðslunni

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 3. janúar 2020 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við höfðum verið fengnir í verkefni við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla og tvinnbíla áður en við fórum sjálfir að flytja inn hleðslustöðvar. Oft var um að ræða grannar lagnir og afkastalitlar hleðslustöðvar og sjaldan verið að hugsa mikið um framtíðina. Í dag eru rafhlöður rafbílanna orðnar töluvert öflugri og með þessum gömlu hleðslustöðvum getur tekið marga sólarhringa að hlaða bílana. Þetta er meginástæða þess að við ákváðum að fara inn á bílahleðslumarkaðinn. Þegar við sáum svo hversu vel EVBox var að leysa vandamál tengd tíðri notkun, álagsdreifingu á hleðslu og umsýslu hleðslukostnaðar var orðið ljóst að þetta væri fyrirtækið sem við vildum tengja okkur við,“ segir Magnús Jaró Magnússon, framkvæmdastjóri Bílahleðslunnar, sem er systurfyrirtæki Rafvirkni ehf., en það síðarnefnda hefur starfað í 35 ár á rafverktakamarkaði.

Ert þú örugglega að hlaða rafbílinn rétt?

Það er afar mikilvægt að hlaða rafbílana rétt. Mannvirkjastofnun, æðsta vald yfir rafmagnsmálum á Íslandi, gaf nýlega út bækling þar sem tilgreindar eru fjórar mismunandi hleðsluaðferðir. Sérstaklega er varað við að stinga bílnum í samband við venjulegan tengil í heimahúsi þar sem sú leið hentar ekki til hleðslu rafbíla nema í mjög takmarkaðan tíma. „Það hefur jafnvel kviknað í tenglum og húsum í kjölfarið, út frá rangri hleðsluaðferð. Eina rétta aðferðin við að hlaða rafbíla er að notast við hleðslustöð með fasttengdri raflögn, líkt og það sem við bjóðum upp á,“ segir Magnús.

Skínandi græn orka

EVBox er leiðandi framleiðandi hleðslustöðva og hleðslustjórnunarhugbúnaðar í heiminum og hafa verið settar upp yfir 75.000 hleðslustöðvar í meira en 55 löndum. Samanlagt hafa hleðslustöðvar þeirra hlaðið 36M kWh á ári, sem jafngildir um 900.000.000 kílómetra akstursvegalengd á rafbíl. EVBox kemur því í veg fyrir losun um 18.450 tonna af útblæstri koltvísýrings árlega. EVBox rekur alla starfsemi sína á grænni orku, flokkar allan úrgang og prentar eins lítið og hægt er. Hleðslustöðvarnar eru þar að auki úr polycarbonate og 100% endurvinnanlegar. Innan skamms mun fyrirtækið enn fremur nýta sólarorku í störfum sínum. „Þessi skínandi umhverfisvitund var önnur ástæða þess að við vildum fara í samstarf við EVBox. Einnig erum við nýbúin að gera starfssamning við Orku heimilanna. Þau hafa verið ódýrust á markaðnum og notast enn fremur við 100% græna orku.“

Lausnir fyrir einstaklinga, fjölbýlishús og vinnustaði

Bílahleðslan býður upp á lausnir fyrir einstaklinga, fjölbýlishús, fyrirtæki og stofnanir. EVBox býður upp á allt að 350 kw hleðslustöðvar með fullkominni álagsstýringu, sem tryggir að rafmagnið í húsinu fari ekki yfir það sem er í boði. Hleðslustöðvarnar  henta í ýmiss konar aðstæðum; bílakjöllurum, sérmerktum stæðum eða heilum bílaplönum. „Það á að vera þægilegt og einfalt að hlaða rafbílana heima sem og í vinnunni. Í flestum tilfellum, þegar um er að ræða fjölbýlishús, eru ekki allir íbúar að nota hleðslustöðvarnar. Það eiga ekki allir rafbíla og enn fremur eiga ekki allir bíl. Því væri ósanngjarnt að láta alla borga fyrir hleðslustöðina og rafmagnsnotkunina sem fylgir. Við bjóðum upp á fyrirtaks lausn á þessu vandamáli. Þá komum við á staðinn og í samstarfi við húsfélagið, útbúum við lagnaleiðir í bílakjallaranum eða á planinu, setjum upp töflu og tengjum hana. Þeir íbúar sem nota rafbíla borga sjálfir fyrir lögn að sínu stæði og kaupa hleðslustöð. Þannig er enginn neyddur til að borga fyrir stöð sem hann notar ekki.“

Bílahleðslan býður upp á fjölbreytt úrval af hleðslustöðvum sem henta í mismunandi aðstæðum. „Fyrir fjölbýlishús mælum við með BusinessLine og Elvi. Fyrrnefndi kosturinn hentar vel fyrir bílaplön fjölbýlishúsa og vinnustaða þar sem eru ómerkt stæði. Allir notendur geta hlaðið rafbílana og opnað stöðvarnar fyrir gesti. Elvi hentar fyrir bílakjallara og plön með merktum stæðum. Þá hefur hver og einn aðgang að sinni hleðslustöð. Bílahleðslan býður einnig upp á PublicLine og DC-hraðhleðslustöð sem henta sérstaklega fyrir fyrirtæki. PublicLine eru útbúnar kortalesara og geta hlaðið tvo bíla á sama tíma. DC-hraðhleðslustöðvarnar geta hlaðið allt að þrjá bíla samtímis. Þær geta hlaðið upp að 125 km á 30 mínútum miðað við 50kw stöð, og upp í 400 km á 15 mínútum með 350kw stöð.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni bilahledslan.is

Akralind 9, 201 Kópavogur

Sími: 519-4488

Fylgstu með á Facebook: Bílahleðslan ehf.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum