fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Kynning

Veggfóður sem hæfir sænskri konungsfjölskyldu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 22. febrúar 2020 12:00

Cole & Son

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Beinteins ehf. býður upp á gagnlega þjónustu fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir svo sem í teppa- og dúkalögn, strigastrekkingu og flotspörtlun. Fyrirtækið sérhæfir sig einnig í innflutningi, sölu og uppsetningu á veggfóðri. „Duro, Marburg, Engblad & Co, Cole & Son, Mr. Perswall, Boråstapeter og Mineheart eru flottustu veggfóðursframleiðendurnir í dag. Í gegnum þessa framleiðendur getum við boðið upp á frábært úrval af fyrsta flokks veggfóðri fyrir heimili, fyrirtæki, hótel og stofnanir á breiðu verðbili. Við sérpöntum fyrir viðskiptavini okkar og getum útvegast nánast hvað sem er,“ segir Einar Beinteins, dúklagninga- og veggfóðrarameistari og eigandi fyrirtækisins.

Einar Beinteins ehf. byggir á þriggja kynslóða reynslu í veggfóðrun og dúkalögn. „Afi var í þessu á sínum tíma og pabbi líka og lærði ég gífurlega mikið af þeim feðgum. Því má segja að reynsla mín spanni um það bil 75 ár í dúkalögn og veggfóðrun,“ segir Einar. „Mín reynsla er sú að veggfóður er alltaf móðins. Þau fást í óendanlegum litum, áferðum, samsetningum og gerðum. Hvort sem þú vilt einfalt og einlitt veggfóður með smá áferð, litríkt og upphleypt veggfóður eða heila veggmynd. Þetta er í raun einfaldasta og oftar en ekki ein ódýrasta leiðin til þess að fríkka upp á herbergi eða rými.“

 

Veggfóður sem hæfir drottningum!

Duro veggfóðrið er sænsk hágæðavara enda hafa þeir framleitt veggfóður fyrir sænsku konungshirðina síðan 1946. Klassísk mynstur, smekklegir litir og nýmóðins áhrif. Duro býður upp á spennandi valkosti fyrir kröfuharða heimiliseigendur. Veggfóðrin eru umhverfisvæn, afar létt en sterkbyggð og þola þvott.

Dura

Brautryðjendur í veggfóðurshönnun

Marburg veggfóðrin eru hönnuð og framleidd í Þýskalandi. Einstök hönnun fyrirtækisins hefur vakið athygli um allan heim. „Marburg er brautryðjandi þegar kemur að hönnun veggfóðurs en þeir framleiða allt frá einföldu, klassísku og einlitu eða smámynstruðu veggfóðri upp í sjálflýsandi veggfóður og jafnvel veggfóður með gljásteinum. Það voru þeir hjá Marburg sem fundu upp hið svokallaða textíl-veggfóður árið 1965. Marburg býður upp á frábærar veggfóðurslausnir fyrir hótel, skrifstofur og heimili á enn betra verði.“

Marburg

Sænska fyrirtækið Engblad & Co var fyrst til þess að hanna og framleiða veggfóður í Skandinavíu. Stílvitund og nýsköpun einkenna veggfóðrin frá þessum framsækna veggfóðursframleiðanda.

Engblad & Co.

Mineheart veggfóðrin fela í sér allt það sem er töff, nýmóðins og frumlegt en byggja á sama tíma á klassískri hönnunarsögu. Útkoman er satt að segja stórkostleg.

 

Gullfalleg mynstur og frábær barnaherbergislína

Veggfóðrin frá Boråstapeter eru ævintýralega falleg og henta í hvaða herbergi sem er í húsinu. Allt frá einföldum geómetrískum mynstrum til flókinna náttúrumynstra. Boråstapeter framleiðir þar að auki dásamlega falleg veggfóður inn í barnaherbergi með frumskógardýrum, flugvélum, hvölum og fleiri skemmtilegum myndum og mynstrum.

Boråstapeter

Hannaðu þitt eigið veggfóður

Mr. Perswall framleiðir sérprentuð veggfóður en býður einnig upp á gífurlegt magn af skemmtilegri og nýstárlegri hönnun. Veggfóðrinu frá Mr. Perswall halda engin bönd nema ímyndunaraflið. Sérprentuðu veggfóðrin eru sérhönnuð til þess að passa nákvæmlega á þann vegg sem þú ert með í huga.

Mr. Perswall

Nýtt og gamalt

Frá árinu 1875 hefur enski veggfóðursframleiðandinn Cole & Son hannað og framleitt hágæða veggfóður fyrir kröfuharða viðskiptavini. Nýstárleg hönnun byggir á klassískum mynstrum átjándu, nítjándu og tuttugustu aldarinnar og útkoman er vægast sagt heillandi.

Cole & Son

Nánari upplýsingar má nálgast á veggfodur.is

Dalvegur 16 D, 201 Kópavogskaupstaður.

Sími: 892-4588

Tölvupóstur: einar@eb.is

Facebook: Veggfoður.is

 

Mr. Perswall

Engblad & Co.

Cole & Son

Boråstapeter

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
16.05.2025

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Sumarsýning Heklu – Nýr og glæsilegur Škoda Enyaq, sértilboð og dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Kynning
10.04.2025

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!

Vorið er komið á Boozt – Endurnýjaðu fataskápinn og heimilið fyrir nýja árstíð!
Kynning
31.01.2025

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ