fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Joe & The Juice: Glæsilegt útibú á Hafnartorgi

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 27. september 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsti Joe & The Juice-staðurinn á Íslandi var opnaður í Kringlunni 2013 og festi sig rækilega í sessi sem einn vinsælasti morgun- og hádegisverðarstaður Reykvíkinga. Vörumerkið Joe & The Juice er danskt að uppruna en það má finna staði úti um allan heim, í fjórum af sjö heimsálfum. Staðurinn er frægastur fyrir ferska, meinholla og bragðgóða safa en býður einnig upp á girnilegar samlokur og unaðslegt kaffi.

Gæði, bragð og ferskleiki

„Vörumerkið Joe & The Juice er einstakt á svo marga vegu. Fyrst og fremst er varan náttúrlega alveg geggjuð. Einföld, næringarrík, fersk og lítið sem ekkert unnin. Samlokurnar og djúsarnir gerðir einungis sekúndum eftir að kúnninn leggur inn pöntun og lífrænt dökkristað kaffið sömuleiðis sérbruggað fyrir hvern viðskiptavin.“ Joe & The Juice gerir ætíð út á einstakan starfsanda, en þar liggja töfrar staðarins. „Starfsfólkið, andinn og stemmingin er það sem gerir vörumerkið að því sem það er í dag. Sem aftur gerir það að verkum að Joe & The Juice skarar fram úr,“ segir Rúnar Kristmannsson, markaðsstjóri Joe & The Juice á Íslandi.

Joe & The Juice á Hafnartorgi.

Glænýtt og glæsilegt útibú á Hafnartorgi

Nýlega var nýtt og glæsilegt útibú Joe & The Juice opnað í miðbæ Reykjavíkur, fyrir neðan læk. „Við opnuðum nýjustu perluna okkar á Hafnartorgi í lok júlí. Það er einstaklega fallegur og flottur staður með glænýrri hönnun og opnum sætasal. Við erum mjög montnir af staðnum enda er hann gullfallegur og passar fullkomlega í skandinavíska stílinn sem er á þessu svæði!“

Glæsileg hönnun

Staðir Joe & The Juice hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir afar fallega og skemmtilega hönnun. „Staðirnir eru virkilega flottir og skemmtilegir með nútímalegri hönnun og notalegu andrúmslofti. Við höfum fengið til liðs við okkur marga rómaða innanhúss- og húsgagnahönnuði. Þar má helst nefna Gubi, &Tradition og Norr11.“

Við elskum fjölmenninguna

Neðst við Laugaveginn er að finna eitt af vinsælustu útibúum Joe & The Juice á Íslandi. „Það er frábært að vera með stað við Laugaveginn en miðbærinn iðar af lífi þessa dagana. Kaffihúsastemmingin á Joe & The Juice heillar miðbæjargesti mjög enda bjóðum við upp á fljótlegan og hollan skyndibita auk þess að vera með grænmetis og vegan valkosti. Við eigum mikið af fastakúnnum á Laugarveginum og sömuleiðis myndar alþjóðlegt umhverfið alveg einstakt andrúmsloft sem við elskum að eiga þátt í á Joe & The Juice.

Alþjóðleg kaffihúsastemning.

Í dag er að finna nítján ferska safa og sex sjeika á matseðlinum sem eru hver öðrum betri. Í gegnum tíðina hafa djúsar komið og farið af matseðlinum og eiga margir fastakúnnar sér uppáhaldssafa sem er horfinn af seðlinum. Að sjálfsöðgu gerum við þó þessa djúsa og sjeika enn fyrir fólk ef við eigum innihaldsefnin. Þá setjum við saman „signature“ safa og sjeika samkvæmt óskum viðskiptavinarins. Í nýjustu herferðinni okkar, „Okkar Pikk“, höfum við svo valið nokkrar vörur sem ekki eru á matseðli heldur koma frá starfsfólkinu okkar. Við mælum mjög með því að fólk prófi þær vörur því hér er um að ræða virkilega bragðgóðar nýjungar sem koma skemmtilega á óvart!“

Sívinsælir safar og sjeikar

„Það er svakalega mismunandi eftir aldurshópum og straumum og stefnum þjóðfélagsins hvað er vinsælast hverju sinni. Power Shake á gríðarlega sterkan aðdáendahóp sérstaklega á meðal yngri kynslóðarinnar! Avocado-djúsarnir okkar, eins og t.d. Fibre Active, hafa líka verið mjög vinsælir frá fyrsta degi. Við höfum svo fengið að heyra að rauðrófudjúsarnir okkar, þá sérstaklega Heartbeet, séu í uppáhaldi hjá mjög mörgum.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni joeandthejuice.is

Hafnartorgi, Keflavíkurflugvelli, Kringlunni, Smáralind, Laugavegi 10, Lágmúla 7 og Laugum Spa.

Vefpóstur: info@joeandthejuice.is

Fylgstu með á Facebook: Joe & The Juice

Instagram: Joeandthejuiceiceland

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum