fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Náttúrulækningar og lífstílsbreytingar reynast vel gegn mörgum kvillum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 21. júní 2019 08:00

Gong spil í slökunartíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiða Björk Sturludóttir hafði frá unglingsárum haft mikinn áhuga á náttúru, náttúrulækningum og mataræði og drakk í sig bækur um austurlenska heimspeki og lækningajurtir. Þegar upp komu veikindi hjá syni hennar, leitaði hún í þennan reynsluheim eftir lækningu og meðferð og varð ekki fyrir vonbrigðum.

 

Einkennin hurfu á einum og hálfum mánuði

„Sonur minn greindist níu ára gamall (2006) með Tourette‘s taugaröskun sem er talin ólæknandi. Þetta var farið að há honum mikið; kippirnir, kækirnir, sérkennilegu hljóðin sem fylgja og síðan þráhyggjan. Vinirnir fuku og sorgin var mikil. Lyf geta ekki læknað Tourette‘s en halda aðeins einkennum niðri og með mjög misjöfnum árangri. Við leituðum því til náttúrulækninga og með breyttu mataræði, bætiefnum, hreyfingu og lífsstílsbreytingu s.s. skertu skjáglápi o.fl. hurfu einkennin á um 1,5 mánuðum,“ segir Heiða Björk.

Nánar má lesa um aðferð Heiðu við að fjarlægja einkennin af Tourette‘s, á vef hennar heidabjork.com undir Fræðslu.

 

Fór í frekara nám til að hjálpa öðrum

Eftir þennan góða árangur byrjuðu aðrir að leita ráða hjá Heiðu svo hún vatt sér í þriggja ára nám í næringarþerapíu til Bretlands, til að verða hæfari til að veita ráðgjöf um næringu og heilsu. „Til að svala enn frekar þorstanum í aukna þekkingu á austurlenskum vísindum skellti ég mér síðan í kennaranám í Kundalini-jóga. Þetta tvennt, næringarþerapían og jógað vinnur ljómandi vel saman, þar sem öndunaræfingar, hugleiðsla og vissar æfingar styrkja mjög ónæmiskerfi, innkirtlakerfi og taugakerfi.“

Heilsudekursferð til Malaga.

Jók við sig þekkingu í Ayurveda

„Ég hef einnig verið að bæta við mig þekkingu á indversku Ayurveda-heilsuvísindunum, til að geta betur skoðað einstaklinginn og hvað hentar hverjum og einum. Samkvæmt Ayurveda erum við samsett úr þremur mismunandi orkulíkamsgerðum þar sem ein til tvær eru vanalega ríkjandi hjá hverjum og einum. Orkulíkamsgerðirnar flokkast síðan í undirorkugerðir og samsetningarmöguleikarnir eru óendanlegir, enda eru engir tveir einstaklingar eins. Þá er mismunandi hvaða mataræði og lífstíll hentar hverjum og einum eftir því hver grunngerðin er. Ayurveda-fræðin geyma risavaxið kerfi utan um þessar grunngerðir og hvað skal gera til að halda þeim í jafnvægi og stuðla að góðri heilsu. Ég byrjaði að nota sérstakan Ayurveda-heilsugreini fyrir nokkrum mánuðum síðan sem mælir grunnorkulíkamsgerðirnar út frá púlsi. Með tækinu mæli ég einnig streitu í líkamanum og heildarorku. Þetta er aðferð sem hefur verið notuð í Rússlandi til að fylgjast með líkamsástandi geimfara sem er ótrúlega spennandi!“

Heilsubúgarðurinn í fjöllum Malagahéraðs.

Mælir með að slaka ærlega á kerfinu

Heiða lærði ennfremur yoga nidra-tæknina sem þýðir jógískur svefn, en þar er fólk leitt inná við og djúpt niður í undirvitundina til að ná fullkominni slökun. Aðferðin losar um taugaspennu og rannsóknir hafa sýnt fram á mikil áhrif á flæði hormóna, taugaboðefna og vöðvaslökun. Hún segir fólk finna mikinn mun á verkjum og svefni, svo ekki sé minnst á jákvæðu áhrifin á konur sem eiga við vandamál að stríða á breytingarskeiði. Í þeim tilfellum segir hún að vissar jurtir virki eins og galdur í bland við reglulega ástundun á jóga nidra-djúpslökun. „Ég hef fundið miklar jákvæðar breytingar á sjálfri mér þar sem ég sjálf er á þessu stórkostlega breytingarskeiði sem getur verið hinn æsilegasti rússibani. Ég hef líka fundið á eigin heilsu hversu jákvæð áhrif það hefur á mig og minn sjúkdóm (lungnaslagæðarháþrýstingur) að slaka ærlega á kerfinu.“

Frá heilsu- og slökunarferðinni til Malaga nú í júní.

Fólk kemur í ráðgjöf til Heiðu vegna mismunandi heilsufarsvandamála; sumir leita aðstoðar vegna meltingarvanda og aðrir vegna orkuleysis, húðvanda eða háþrýstings. Margir glíma við afleiðingar mikillar, langvarandi streitu sem getur valdið þunglyndi, orkuleysi og kvíða. „Fólk þarf að huga að því að veita líkamanum þau efni sem oft skortir eftir langvarandi streitutímabil, s.s. magnesium, B-fjölvítamín og C-vítamín. Vissar jurtir geta stutt nýrnahetturnar til að þola álag betur, en það eru þær sem eru undir mestu álagi vegna streitu, því þær þurfa þá að framleiða streituhormónin adrenalín og cortisol í stórum skömmtum og oft til lengri tíma. Langvarandi streita hefur einnig mjög neikvæð áhrif á skjaldkirtil og ýmis efni sem við fáum í okkur úr mat og drykk geta skaðað hann. Þetta er allt hægt að skoða með aðferðum næringarþerapíu og gera æfingar sem styrkja nýrnahettur og skjaldkirtil. Ráðgjöf mín felur ekki bara í sér næringarráðgjöf og jurta- og bætiefnanotkun, heldur mæli ég einnig með vissum lífsstílsbreytingum, æfingum, hugleiðslu og öndunaræfingum. Svo mæli ég oft með vissum ilmkjarnaolíum til að ná fram ákveðnum áhrifum. Áhrifin af mataræði, bætiefnum, jurtum, jóga og slökun eru svo stórkostleg á heilsu okkar að helst vildi ég að allir prufuðu á sjálfum sér, sérstaklega þeir sem þjást af einhverjum heilsufarskvillum.“

Jóga stundað í heilsudekursferð í Malaga.

Heilsudekursferðir til Malaga

Heiða er nú byrjuð að bjóða upp á heilsudekursferðir til Malagahéraðsins á Spáni. „Ég vildi sameina áhuga minn á náttúru, heilsugeiranum og spænskri menningu og leyfa öðrum að njóta með mér. Fyrsta ferðin var núna í byrjun júní og tókst frábærlega. Við stunduðum jóga, hugleiðslu og slökun úti í guðsgrænni náttúrunni, umvafin náttúruhljóðum og frísku lofti í fjöllum Malagahéraðs. Við fórum í gönguferðir, böðuðum okkur í tæru uppsprettuvatni og nutum góðs félagsskapar. Við slepptum örvandi drykkjum s.s. áfengi og kaffi á meðan á dvölinni stóð og borðuðum næringarríka grænmetisfæðu að miklu leyti lífrænt ræktaða úr héraði. Maturinn var dásamlega bragðgóður og nærandi og laus við gluten, kúamjólk og viðbættan sykur. Það þurfti enginn að hafa áhyggjur af stífluðum meltingarvegi eins og svo oft er þegar fólk fer erlendis í frí. Þetta verður klárlega endurtekið aftur næsta ár í júní og aftur í október. Þeir sem vilja skrá sig mega hafa samband við mig í vefpósti, heida@heidabjork.com.“

Námskeið í Heillandi hug og Systrasamlaginu

Heiða hefur haldið námskeið í heilsu- og fræðslusetrinu Heillandi hug í Hlíðasmára í Kópavogi. „Ég reyni að samræma jóga og næringarráðgjöf á námskeiðunum mínum og býð því upp á hreinsandi og uppbyggjandi safa eða aðra hollustu í bland við stutta fræðslufyrirlestra, jóga, hugleiðslu og slökun. Eitt slíkt námskeið hefst 24. júní og stendur yfir í viku og annað þann 1. júlí. Einnig hef ég verið með stutt kvöldnámskeið hjá Systrasamlaginu um áhrif næringar og lífstíls á andlega og líkamlega heilsu eða um gerð kefirs og kombucha sem eru stórkostlega heilsueflandi góðgerladrykkir,“ segir Heiða og býður alla velkomna á námskeið hjá sér.

Nánari upplýsingar má nálgast á heidabjork.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum