fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Hættum að skrópa, Noona

Kynning
Hildur Hlín Jónsdóttir
Laugardaginn 30. nóvember 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar við fengum fyrst símtal frá sölumanni DV vorum við efins um ágæti þess og tilgang að borga fyrir að kynningarfulltrúi myndi skrifa um okkur svokallaða „kynningargrein“. Auðvitað væri frábært ef fjölmiðlar landsins tækju sig til og skrifuðu meira um Noona og það sem við erum að gera, en það er frekar á okkur en þeim að gera eitthvað sem getur talist fréttnæmt.

Eftir nánari íhugun kom þó í ljós að þetta gæti verið góður vettvangur til þess að fræða almenning, og þar með talið þig, kæri lesandi, um eitt stærsta vandamálið sem við erum að takast á við. Vandamál sem fáir velta mikið fyrir sér en veldur miklum þjóðfélagslegum skaða. Vandamál sem viðskiptavinir okkar, aðilar sem taka við tímabókunum, glíma við á hverjum einasta degi.

Viðskiptavinir okkar bera enga sök á þessu vandamáli sjálfir. Öllu heldur eru það viðskiptavinir þeirra sem valda þessu, oft ómeðvitaðir um afleiðingarnar sem fylgja. Milljarðar tapast árlega vegna þessa og það er tímabært að við opnum á umræðuna.

Vandamálið sem um ræðir er skróp. Þegar tímar eru bókaðir hjá fagaðilum eða sérfræðingum, sem síðan voru ekki nýttir.

Getur verið að þú sért hluti af vandamálinu?

Stærra en þú heldur

Skróp hefur áhrif á stóran hóp þjóðfélagsins. Stéttir sálfræðinga, kírópraktora, hársnyrtifræðinga, snyrtifræðinga, fótaaðgerðafræðinga, ráðgjafa og fleiri glíma allar við þetta skæða vandamál.

Vandamálið er stærra en flestir halda. Samkvæmt gögnum okkar er skrópað í u.þ.b. 5% allra tíma á Íslandi og ef þú skrópaðir ekkert á árinu sem var að líða ert þú í minnihluta.

Á verstu mánuðum sem við höfum séð, yfir 5 ára sögu okkar við að þjónusta einstaklinga og fyrirtæki sem taka við tímabókunum, var skrópað í 20% af öllum tímum mánaðarins.

Getur þú ímyndað þér að fá óvænt 20% minna útborgað en þú gerðir ráð fyrir? Fyrir marga getur það haft í för með sér mikla óvissu varðandi hvort hægt sé að mæta útgjöldum mánaðarins.

Þjónustuaðilar um allt land verða af þúsundum, ef ekki tugum þúsunda króna, við hvert einasta skróp. Eftir því sem mánuðirnir líða breytast tugir þúsunda í hundruð þúsunda. Yfir árin tapast milljónir. Fjármunir sem betur væru nýttir í viðgerðir á húsinu, utanlandsferðir með fjölskyldunni eða eitthvað fallegt handa krökkunum.

Óásættanlegur raunveruleiki

Skróp veldur þjónustuaðilum flóru af erfiðum tilfinningum. Sífelld óvissa um tekjur mánaðarins valda áhyggjum sem aðrir þegnar atvinnulífsins þurfa blessunarlega ekki að glíma við. Vonbrigðin þegar hugsað er til tekjutaps seinustu viku, mánaðar og ára skjótast upp í huga margra með reglulegu millibili.

Skiljanlega upplifa margir reiði í hvert skipti sem einhver skrópar. Sérstaklega ef viðskiptavinurinn hringir ekki einu sinni til að afboða tíma sem aðrir hefðu glaðir vilja mæta í og tekjutapið því algjörlega tilgangslaust.

En þetta er því miður raunveruleikinn sem flestir innan þjónustugeirans glíma við. Þetta eru aðstæður sem enginn annar hópur innan samfélagsins þarf að sætta sig við. Þessar aðstæður eru óásættanlegar.

Hvað er sanngjarnt?

Stór vandamál krefjast lausna. Sú lausn sem oftast hefur borist í tal innan þjónustugeirans eru skrópgjöld. Gjald á milli 50–70% af andvirði tímans sem leggst á viðskiptavin ef hann skrópar.

Sú lausn gengur upp af nokkrum ástæðum. Ef viðskiptavinir bera fjárhagslegan hvata af því að mæta í tíma mun skróp minnka. Einstaklingar sem ætla sér ekki endilega að mæta í tíma hugsa sig tvisvar um að bóka ef þeir eiga á hættu að þurfa að greiða skrópgjald*. *Ef skróp á sér stað, þarf þjónustuaðilinn ekki einn að bera kostnaðinn af mistökum viðskiptavinarins.

Við munum þó alltaf berjast fyrir sanngjörnum viðskiptaháttum. Þegar kemur að skrópgjaldi þarf að taka tillit til aðstæðna hverju sinni. Ákvörðun sem varðar framkomu fyrirtækja við viðskiptavini sína þarf að horfa á með linsum siðferðisins, sannleikans og sanngirni.

Því hvað er raunverulega sanngjarnt? Er það sanngjarnt að þjónustuaðili tapi peningum mánaðarlega því fólk sefur yfir sig? Er það sanngjarnt að þú þurfir að greiða fyrir tíma sem þú komst ekki í vegna þess að þú lentir í bílslysi, eða þurftir að bíða með barninu á slysó?

Þetta eru erfiðar spurningar, því þær kljást hvor við aðra. Hvorugt er sanngjarnt. Hvort rukka eigi skrópgjald er því spurning sem býður upp á tvö sönn svör sem eru í beinni þversögn hvort við annað.

Það er sanngjarnt að þjónustuaðili fái greitt fyrir tíma sem fólk bókar. Sama hvort þjónustan er veitt eða ekki, þá eiga allir rétt á því að fá greitt fyrir að lofa tíma sínum og sérþekkingu í þágu annarra.

En það er heldur ekki sanngjarnt að þú þurfir að greiða fyrir tíma sem þú komst ekki í vegna einstakrar óheppni. Það er nauðsynlegt að geta sýnt samúð í viðskiptum.

Skrópgjaldið ætti því einungis að vera rukkað undir sanngjörnum kringumstæðum. En hvenær er það þá sanngjarnt að rukka skrópgjaldið? Það er spjallið sem við sem samfélag þurfum að eiga.

En það spjall ætti frekar að snúast um hvenær, en ekki hvort, eigi að rukka skrópgjald.

Nýtt viðhorf

Við hjá Noona höfum eitt markmið: Að auka heildarveltu á þjónustumarkaði. Okkur langar að hjálpa öllum sem taka við tímapöntunum að lifa þægilegra lífi, minnka tímaeyðslu sem fer í símsvörun, draga úr skrópi og leyfa fólki að einbeita sér að því sem það er best í, að þjónusta þig.

Skróp er flóknasta vandamál sem við höfum tæklað enda engin augljós lausn í sjónmáli. Við munum aldrei eyða skrópi algjörlega þótt okkur dreymi um það. Óhöppin gerast án fyrirvara og stundum er skróp óhjákvæmilegt. Ef þú lendir í slíkum aðstæðum hvetjum við þig til að láta vita með eins löngum fyrirvara og mögulegt er.

Stundum skrópar þú vegna gleymsku. Allir gera mistök. Við erum mannleg, eftir allt saman. Er þá ekki sanngjarnt að greiða skrópgjald?

Við ættum öll að gera allt sem í okkar valdi stendur til að skrópa ekki. Kæruleysislegu viðhorfi okkar gagnvart skrópi þarf að breyta.

Við getum hjálpað

Ef þú bókar tímann þinn í gegnum Noona þarf þjónustuaðili ekki að taka sér tíma frá viðskiptavini til að svara símanum. Þá eru líka minni líkur á að þú skrópir að óþörfu, því Noona-appið sendir þér áminningu klukkutíma fyrir tímann. Ef upp kemur sú staða að þú þurfir að afbóka eða færa tíma getur þú svo gert það hvenær sem er dagsins á Noona, í staðinn fyrir að hringja enn eitt símtalið í viðbót.

En sama hvernig þú bókar tímann, mundu bara að það er manneskja á hinum enda línunnar sem er að taka frá verðmætan tíma sinn fyrir þig. Mætum eða látum vita. Samfélag okkar verður ríkara og sanngjarnara fyrir vikið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum