fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Jói kassi og rammíslenskt jóladagatal: „Þetta er mín Toy Story“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 18:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í upphafi er söguhetjan lítið fræ uppi á hóli í miðjum skógi. Yfir fræinu vakir gamalt og virðulegt eikartré sem heitir Eiríkur. Fræið verður smám saman að trénu Jói. Eins og vera ber í góðri barnasögu persónugerast bæði tré og dýr, í máli og myndum. Vinnuvélar herja á skóginn, saga niður tré og breyta í viðarplötur. Jói lifir áfram og verður að viðarkassa, sem er til sölu í húsgagnaverslun. Hann fer þaðan inn á skrifstofu bankastjóra og lendir í höndum ræningja sem ílát undir stolin verðmæti. Viðburðarík saga Jóa Kassa er hér rétt að byrja,“ segir Konráð Sigurðsson og lýsir þar með byrjuninni á bókaflokknum um Jóa Kassa, sem er sex bóka röð með skemmtilegum ævintýrasögum og litskrúðugum myndum eftir Þóri Karl Celin.

Mynd: Eyþór Árnason

„Veistu hvað þú ert með í höndunum, maður?“

„Þetta byrjaði allt með því að ég fór að segja eins árs syni mínum sögu. Hann átti erfitt með að sofna og móðirin bað mig um að svæfa hann því ég væri með svo róandi rödd. Þá birtist í huga mínum tré uppi á hól. Tréð var bara tré til að byrja með, ekki karakter. Drengurinn róaðist þó og sofnaði. Svo gerðist það stuttu síðar í sunnudagsbíltúr að drengurinn benti hrifinn út um bílrúðuna á vinnuvél að ég fékk hugljómum: Vél – tré! Svo hjó vinnuvélin tréð niður. Ég sá fyrir mér atburðarás, fór í vinnuna og skrifaði niður beinagrind að sögu. Þetta var 6. júní 2001. Ég setti blaðið niður í skúffu og ekkert gerðist í langan tíma. Árin liðu, drengurinn hætti að þurfa að láta svæfa sig og sagan gleymdist. Haustið 2004 dreymdi mig merkilegan draum, hálfgerða vitrun sem sagði mér að ég ætti til hugmynd sem myndi koma mér til metorða. Hvað var ég með? Hvað átti ég til? Þá dúkkaði blaðið í skúffunni upp aftur. Ég sýndi samstarfsmanni mínum beinagrindina. Hann sagði: „Veistu hvað þú ert með í höndunum, maður?“ og tíminn var runninn upp til að gera hugmyndina að veruleika.“

 

Ein löng saga verður að sex bókum

„Þessi áramót strengdi ég þess heit að klára söguna og gerði það á einu ári. Ég leitaði ráðgjafar frá Karli Helgasyni hjá bókaútgáfu Æskunnar. Hann ráðlagði mér að skipta verkinu niður því það væri of mikið að gerast í handritinu. Þannig varð Jói Kassi að sex bóka seríu þar sem myndir leika stórt hlutverk. Árið 2007 komst ég í samband við teiknarann Þóri Karl Celin sem þá starfaði hjá Latabæ og sagði honum að þetta væri mín Toy Story. Ég var með grófar hugmyndir en hafði aldrei fengið teikningarnar mínar til að ganga upp en Þórir Karl gerði þetta listavel.“ Innblástur í sögurnar sækir Konráð til mótunarára sinna í Svíþjóð. „Ég bjó þar frá sex ára aldri fram til tvítugs. Ýmislegt úr umhverfinu hefur ratað í bækurnar, til dæmis skógarnir og endurvinnslan.“ Bækurnar hafa notið vinsælda síðan þær komu fyrst út jólin 2010 og seljast jafnt og þétt í bókaverslunum, sérstaklega fyrir jólin. Á hverju ári eignast Jói fjölmarga nýja lesendur í aldurshópunum 3–8 ára, en bækurnar eru víðlesnar í leikskólum. Einnig eru bækurnar tilvaldar fyrir jólasveina að lauma í skóinn hjá krökkunum.

Mynd: Eyþór Árnason

Fjölmörg verk í smíðum

Konráð hefur einnig gefið út þrjár jólabækur um Jóa Kassa sem eru litabækur með sögu. Að auki er hann með fjölmörg ritverk í smíðum. „Ég er með um tíu handrit, ýmist langt komin eða fullkláruð og bíða útgáfu. Konráð hefur þá hafið ritun nýs bókaflokks um Lepp, karakter úr Jóa Kassa-seríunni sem er kominn með eigin upprunasögu. Það verða sex framhaldsbækur og þriðja bókin í seríunni, Leppur og höfðingjarnir, kemur út á næsta ári. Einnig er væntanleg Vinalega fuglahræðan, ný barnasaga. Það er ástríðublik í augum Konráðs þegar hann ræðir um ritverk sín og framtíðardrauma. „Ég er að vinna í skáldsögu sem er eins konar fullorðinsútgáfa af Palli var einn í heiminum. Sú saga er ljót og skuggaleg.“ Samhliða ritstörfunum rekur Konráð fyrirtækið Xprent-hönnun og merkingar ehf., í Sundaborg 3 í Reykjavík. Xprent er skiltagerð sem sinnir prentþjónustu og alhliða merkingum.

Mynd: Eyþór Árnason

Dagatalið Jói Kassi

Jólin 2017, eftir að hafa gengið með hugmyndina í um 5 ár setti Konráð á markað jóladagatal með Jóa Kassa. „Mér fannst bráðvanta íslenskt dagatal og fannst því tilvalið að nota Jóa Kassa, enda þekkja hann mörg börn. Ég hafði samband við Freyju sælgætisgerð, en allir mínir uppáhaldsmolar eru í hátíðarpakkanum frá þeim. Freyja tók vel í þetta og ég kaupi nammið beint af þeim. Svo fann ég aðila sem voru tilbúnir að framleiða kassann og plastbakkann fyrir dagatalið á skikkanlegu verði. Þarna er kominn íslenskur karakter á jóladagatal í jólastuði. Það er líka snjókarl utan á og svo framvegis,“ segir Konráð, en eins og sést á myndunum er dagatalið bæði líflegt og fallegt. Pökkunin fer fram á Íslandi og aftan á eru úrklippufígúrur fyrir börnin til að klippa út á aðfangadag, þegar þau eru búin að opna síðasta gluggann. Einnig er jólaleikur aftan á dagatalinu sem börnin geta skemmt sér við þar sem þau bíða þess spennt að opna síðustu gluggana. „Í leiknum er hægt að komast í pott og vinna til ýmissa verðlauna.“

 

Bækurnar eru til sölu í völdum Eymundsson-búðum og Jói Kassi dagatalið er til sölu í flestum Hagkaupsverslunum og í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það er hægt að kynna sér þetta betur á Facebooksíðu Jóa Kassa og heimasíðu Jóa Kassa á: www.joikassi.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum