fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Kynning

Rótor: Gæða kamínur frá Spáni

Kynning
Hildur Hlín Jónsdóttir
Laugardaginn 16. nóvember 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rótor ehf. hefur um langt árabil sérhæft sig í rafbúnaði bíla, ferðavörum, sólarorku, smíði húsbíla, sölu pallhýsa og nú býður það einnig upp á gæða kamínur og arna frá Spáni.

 

Með áratuga reynslu

Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1989 af Lárusi G. Brandssyni og er hann því búinn að reka það í 30 ár samfleytt. Lengst af var það bíla- og vélaverkstæði samhliða verslun í Hafnarfirði en rekstrinum var síðan skipt upp í tvö sjálfstæð fyrirtæki árið 2016.

Síðan þá hefur Rótor blómstrað í Bæjarlind 6, Kópavogi, undir stjórn Lárusar og hafa viðskiptavinirnir kunnað að meta stærri verslun, betri þjónustu og aukið vöruúrval. Verslunin er gjarnan kölluð „Dótabúðin“ af viðskiptavinunum því þeir gleyma margir stað og stund þegar skoðað er í hillurnar.

„Við aðstoðum viðskiptavininn eins og við getum í vali íhluta, hvort sem um er að ræða sólarsellur, markísur, kamínur, rafbúnað eða hvers konar sérpantanir. Oft kemur viðskiptavinurinn með grunnhugmyndir, sem við síðan útfærum í samráði við hann, þannig að allt virki nú eins og til er ætlast,“ segir Lárus.

 

Árstíðabundnar sveiflur

Fyrirtækið státar af mörgum vöruumboðum, sem öll eiga það sameiginlegt að bjóða upp á hágæða vörur, sem er jafnframt aðaláhersla fyrirtækisins ásamt því að stilla vöruverði í hóf. Flest eiga þau það þó sammerkt að bjóða vörur sem tengjast beint eða óbeint sól og sumri þó svo að alltaf sé eitthvað um verslun á veturna, einkum í rafbúnaði hvers konar.

Árstíðabundin sveifla er því óhjákvæmilegur fylgifiskur þeirra fyrirtækja sem bjóða aðallega upp á ferðatengdan búnað og er Rótor þar engin undantekning. Lárus hefur þó leyst það með því að bjóða upp á spænskar kamínur og rafmagnsvélahitara, sem hvort tveggja hefur slegið í gegn hjá landanum.

Úrval af vönduðum kamínum

Heitasta varan um þessar mundir er spænsku kamínurnar og arnarnir frá Panadero, sem hafa algjörlega slegið í gegn. Þær þykja afskaplega vandaðar, fallegar og á sérstaklega góðu verði. Kamínurnar eru smíðaðar úr plötustáli með tvöfalt byrði og eru því einstaklega öruggar og þægilegar í notkun,“ segir Lárus.

Rótor selur eingöngu kamínurnar sjálfar en vísar á blikksmiði og -smiðjur um allt land varðandi reykrör, rétta uppsetningu og tengingar. Hvetur Lárus áhugasama blikkara til að skrá sig á lista hjá þeim, einkum þá sem búa nærri sumarhúsahverfum s.s. á Suður- og Vesturlandi.

Mikið hefur verið pantað af kamínum fyrir hátíðirnar, rétt eins og í fyrra, en hægt verður að panta inn í síðustu sendinguna fyrir jól til 20. nóvember.  „Jólagjöf fjölskyldunnar í ár,“ segi Lárus að lokum.

Hægt er að hafa samband við Rótor í síma 555-4900 eða með tölvupósti á rotor@rotor.is.

Fyrirtækið heldur úti öflugri heimasíðu, www.rotor.is ásamt vinsælli Facebook-síðu undir merkjum Rótors. Þar er hægt að fylgjast með því, sem er helst að gerast frá degi til dags á meðan heimasíðan geymir upplýsingar um flestar þær vörur sem fást í versluninni.

Rótor ehf. – Bæjarlind 6 – 201, Kópavogi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni
Kynning
01.09.2023

Vaxandi áhugi á lífsstíls- og hreyfiferðum hjá Úrval Útsýn – „Fólk kemur endurnært tilbaka“

Vaxandi áhugi á lífsstíls- og hreyfiferðum hjá Úrval Útsýn – „Fólk kemur endurnært tilbaka“
Kynning
20.07.2023

Heitir pottar fyrir íslenskar aðstæður – „Sala á rafmagnspottum hefur aldrei verið meiri“

Heitir pottar fyrir íslenskar aðstæður – „Sala á rafmagnspottum hefur aldrei verið meiri“
Kynning
05.04.2023

„Hver veit nema þú fáir það hjá Hermosa“

„Hver veit nema þú fáir það hjá Hermosa“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl