fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Óprúttnir aðilar sóðuðu út pottasvæðið í skjóli nætur

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 2. júlí 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baccalá Bar á Hauganesi er auðþekkjanlegt kennileiti í bænum enda er staðurinn prýddur fallegu útisvæði eða verönd sem lítur út eins og forláta víkingaskip. „Það hefur verið dásamlegt að sóla sig úti á veröndinni í sumar og horfa yfir Eyjafjörð, þegar sólin hefur látið sjá sig. En á sólardögum er veröndin þéttsetin af bæði innlendum víkingum og heimamönnum sem og erlendum ferðamönnum. Í nágrenninu er svo elsta starfandi hvalaskoðun á landinu og fáum við fjölda fólks til okkar eftir hverja siglingu á hvalamiðin,“ segir Elvar Reykjalín hjá Baccalá Bar.

Elvar er reynslumikill kokkur og hefur tekið á móti fólki í kynningar og mat í yfir tuttugu ár. „Oft á tíðum hef ég eldað við frekar frumstæðar aðstæður en þegar fjölgun gesta var orðin slík að ég hafði ekki undan, þá var ekki annað hægt en að koma sér upp almennilegri aðstöðu. Ég byrjaði fyrir fjórum árum að byggja upp veitingahúsið Baccalá Bar. Síðan þá hefur verið stöðugur stígandi í rekstrinum hjá okkur, þá sérstaklega á þessu ári. Við erum að sjá um 70–80% aukningu frá sömu mánuðum á síðasta ári og erum við mjög spennt fyrir framhaldinu.“

Dýrindis saltfiskpizza og nýveiddur fiskur

Á veitingastaðnum Baccalá Bar starfa fjórir Spánverjar við matreiðslu og þjónustu ásamt tveimur íslenskum stúlkum úr þorpinu. „Þetta er jú Baccalá Bar og baccalá á spænsku þýðir þorskur. Einnig merkir orðið saltfiskur en við gerum út á bæði fiskinn og saltfiskinn hér á Baccalá Bar. Við erum þó með eitthvað fyrir alla á matseðlinum, allt frá salati, hamborgurum og fiski upp í dýrindis nautasteikur.

Vinsælasti rétturinn er án efa fiskur og franskar, en við notum alltaf glænýjan fisk sem veiddur er á handfæri af honum Ragga bróður. Pizzurnar okkar þykja einnig mjög góðar og eru gríðarlega vinsælar. Þá er saltfiskpizzan sérstaklega vinsæl, enda þykir saltfiskurinn frekar óvenjulegt og spennandi pizzuálegg.“

Líklega besta verðið á kokteilum

„Einn af Spánverjunum okkar er alger sérfræðingur í kokteilum. Sennilega erum við með lengsta kokteillista landsins og alveg örugglega besta verðið á þeim. Þeir eru líka geysivinsælir. Ég mæli sérstaklega með Brælu á Baccalá Bar og Ödda Verkstjóra.“

Sandvík

Ískaldir pottar til að sporna við sóðaliði

Staðsetning heitu pottanna er vægast sagt frábær í Sandvíkurfjörunni. „Þetta er grunn og löng sandfjara sem snýr á móti suðri, alveg dásamlegt svæði. Einnig sjáum við um tjaldstæði fyrir ferðamenn. Ég byrjaði á einum potti fyrir fjórum árum þegar uppbygging veitingahússins og tjaldsvæðisins hófst og hef ég fjölgað pottunum á hverju ári. Nýjasti potturinn er skip með rá og reiða og er mjög vinsæll. Baðaðstaðan er undir bakka þannig að þótt það sé norðanhafgola er algert skjól undir bakkanum og frábært að sóla sig í logninu. Verðinu í pottana er stillt í hóf enda kostar ekki nema 500 krónur ofan í þá. Ætlunin var að hafa pottana opna allan sólarhringinn en í vor neyddist ég til að hleypa úr þeim um tíma vegna sóða sem komu seint á kvöldin, gengu um eins og svín og skemmdu og brutu upp peningakassann nokkrum sinnum.
Nú er reyndar vatn í pottunum allan sólarhringinn og ég leyfi fólki að vera lengur en til klukkan 22.00 ef það hefur samband og einhver tekur ábyrgð á hópnum. Allt gott fólk er velkomið og sem betur fer eru 99% fólks frábærir gestir sem ganga vel um og eru til fyrirmyndar og vil ég þakka þeim öllum kærlega fyrir komuna.“

Það er heldur betur gott að skella sér í pottinn eftir sjósundið.

Hafnargata 6, Hauganesi, 621 Dalvíkurbyggð.

Nánari upplýsingar má nálgast á ektafiskur.is/veitingahus/

Sími: 620-1035

Netfang: elvar@ektafiskur.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum