Laugin ehf. hefur starfað frá árinu 2012 og er í dag einn helsti sölu- og þjónustuaðili í heitum pottum og skyldum vörum. Jafnframt býður Laugin ehf. upp á alhliða viðgerða- og viðhaldsþjónustu fyrir eigendur allra heitra potta og sundlauga, gildir einu hvar pottarnir hafa verið keyptir. Viðgerðar- og viðhaldsvinnu sinna eingöngu fagmenn en hjá fyrirtækinu starfa pípulagningameistari og rafeindavirki.
Laugin sinnir víðtækri þjónustu fyrir einka- og almenningssundlaugar með hreinsiefni, dælur, sandsíur, varahluti og fleira, jafnframt því að sinna breytingum og viðhaldsvinnu fyrir sundlaugar.
Laugin býður upp á gott úrval fylgi- og varahluta í flestar gerðir potta, meðal fylgihluta má nefna: Tröppur, lokalyftur, síur, hitamæla, háfa, klórskammtara, fljótandi glasabakka og ýmislegt fleira. Og meðal varahluta eru t.d. dælur, hitaelement, barkar, nuddstútar, kúlulokar og margt fleira.
Úrvalið er mikið og fróðlegt að skoða það í vefversluninni á laugin.is eða í versluninni sjálfri að Smiðjuvegi 4. En hér er vert að nefna annars vegar hina rómuðu heitu potta Caldera Spas frá Bandaríkjunum. Þetta er eitt þekktasta merkið í bransanum og hafa pottarnir verið fáanlegir á íslandi í hátt í 15 ár, en þeir voru áður seldir í Byko. Caldera Spa-pottarnir eru mjög hátt metnir í erlendum fagritum.
Laugin býður upp á mikið úrval hreinsiefna en þar ber helst að nefna Aqua Finesse Hot Tub, umhverfisvæna hreinsiefnið frá Special Water Europe. Vinsældir Aqua Finesse stafa af því hversu árangursríkt og einfalt það er í notkun. Góð umhirða og viðhald eru mjög mikilvægir þættir fyrir góða endingu heitra potta. Ef þú hefur verið að eignast heitan pott eða ert ekki alveg klár á hvernig best er að sinna umhirðu, þá er hægt að kíkja við í Lauginni eða bara hringja og fá ráðgjöf.
Laugin rekur öfluga vefverslun á vefsvæðinu laugin.is sem kemur sér vel fyrir þá sem búa á landsbyggðinni og geta keypt sér á netinu heita potta, rekstrarvörur og varahluti á hagstæðu verði, og ef þeir eru á ferðinni í Kópavogi er um að gera að kíkja við og versla og fá góð ráð í kaupbæti. Flestir viðskiptavinir fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu koma hins vegar í verslunina og gera sín innkaup þar og fá í leiðinni góða, faglega ráðgjöf.
Meðal umboða: Caldera Spas, Fantasy Spas, Aqua Finesse, Bayrol, Pleatco, Waterway, ACC, Procopi, Poolmaster, o.fl.
Laugin er sem fyrr segir til húsa að Smiðjuvegi 4 og er opið virka daga frá kl. 9 til 17.30.