fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Sölutraust: Uppfærður öryggisbúnaður

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 29. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Sölutraust hefur verið starfrækt í 15 ár og sérhæfir sig í sölu á ýmsum öryggisvörum, til dæmis sjúkrakössum og skyldum vörum, mengunarvarnarbúnaði og öryggismerkingum. En þessar mikilvægu vörur eru bara einn þáttur í starfseminni. Þjónustan við viðskiptavini er ekki síður mikilvægur þáttur og kemur meðal annars fram í stöðugu viðhaldi á öryggisbúnaðinum og aðlögun að hverjum og einum viðskiptavini eftir aðstæðum hans.

„Það hefur orðið hugarfarsbreyting í öryggismálum hér á landi og kæruleysi hefur minnkað og nánast undantekning að starfsmenn noti ekki viðeigandi öryggisbúnað eins og öryggishjálma. Starfsfólk er í auknum mæli farið að gera kröfur til sinna vinnuveitenda um að öryggismál séu í lagi,“ segir Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sölutrausts.

Lítið gagn af óáfylltum sjúkrakassa

Einn mikilvægur liður í öryggismálum er að sjúkrakassi sé ekki bara til staðar heldur að hann sé ávallt uppfærður og sé með öllu því innihaldi sem fólk reiðir sig á. „Sjúkrakassinn er sambærilegur við slökkvitæki að því leyti að ef tekið er af án þess að fylla á aftur þá verða þessi tæki gagnslaus og skapa falskt öryggi. Hluti af okkar þjónustu er að fylla reglulega á sjúkrakassa og fylgjast með að allt sé í þeim sem þar á að vera.

Stórsniðugur plástraskammtari

Til að minnka rót í sjúkrakössum út af skrámum og smáskeinum þá eru plástraskammtarar góð lausn og eru mjög margir af okkar viðskiptavinum búnir að koma sér upp slíkum búnaði. Einnig eru hafðir augnskols- og eða brunagelsplattar hjá sjúkrakössum sem hægt er að nýta sér eftir þörfum,“ segir Vignir.

Augnskol og brunagel eru líka mikilvægur sjúkra- og öryggisbúnaður sem Sölutraust tryggir að ávallt sé til reiðu þar sem þess er þörf. „Augnskol gegn ætandi efnum er bráðnauðsynlegt á stöðum þar sem menn geta fengið hættuleg efni í augu. Ég þekki dæmi um atvik þar sem rafgeymir sprakk og starfsmaður fékk rafgeymasýru í augun. Vinnustaðurinn var nýbúinn að fjárfesta í augnskolsbúnaði og það tókst að skola augu og andlit í tæka tíð. Maðurinn kom til vinnu eftir fjóra daga með heil augu,“ segir Vignir.

Olíuþerriklútar og flotgirðingar

Mengunarvarnarbúnaður er annar mikilvægur þáttur í starfsemi Sölutrausts. Ber þar hæst olíuþerriklúta sem nýtast til að halda vinnusvæðum hreinum sem eykur í senn öryggi og ánægju á vinnustað, og hins vegar flotgirðingar sem lágmarka skaða af mengunarslysum. „Ef olía fer í sjó er flotgirðingu kastað út og hún hreinsar upp mengunina á stuttum tíma. Þetta eru uppsogspulsur sem fljóta á vatni og draga eingöngu í sig olíukennda vökva – en ekki vatn,“ segir Vignir.

Fyrir utan þetta eru ónefndar vörur á borð við öryggis- og aðvörunarskilti, sápur og hreinsiefni, fellistiga, hringstiga og flóttastiga.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni solutraust.is.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum