fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Nóna Iceland: Gullfallegar hekl- og prjónavörur fyrir barnið

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 19. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá barnafatamerkinu Nóna Iceland má eflaust finna þær allra fallegustu og krúttlegustu prjónaflíkur sem Ísland hefur upp á að bjóða. Flíkurnar eru ætlaðar jafnt strákum sem stelpum á aldrinum 0–8 ára og fást í fallegum mildum litum úr guðdómlegri merínoull. „Nafnið Nóna kemur úr fjölskyldunni, en gullið hún amma mín sáluga var mikil prjónakona og var alltaf kölluð Nóna. Mamma mín er sömuleiðis fyrirmyndarprjónakona sem og ég sjálf,“ segir Sif Vilhjálmsdóttir, eigandi Nóna Iceland.

Nóna

Að mörgu að huga

Sif hannar sjálf þessar fallegu flíkur. Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að hanna prjónaða eða heklaða flík. „Það er enginn að finna upp hjólið þegar kemur að prjónahönnun, en þetta tekur allt mjög langan tíma; allt frá því að ég fæ hugmynd í kollinn þangað til flík er fullkláruð og tilbúin í sölu. Það þarf að finna hvaða garnþykkt hentar, lykkjufjölda, sentimetra og ýmis smáatriði. Svo þarf að fullklára flík og láta barn máta og helst nota í smá tíma til að sjá eiginleika vörunnar og vita hvort það megi bæta og breyta,“ segir Sif. Vörurnar eru frá því að vera fyrir allra minnstu krílin og upp í átta ára. Sif segist þó framleiða þónokkuð af sérpöntunum fyrir eldri krakka og stundum fyrir fullorðna.

Nóna

Fjölskyldan hjálpast að

Nóna Iceland er sannkallað fjölskyldufyrirtæki þar sem allir hjálpast að þegar mikið liggur við. „Ég framleiði mestan hlutann ásamt tengdamóður minni. Tengdamamma hefur verið algjör klettur í þessu öllu saman, enda er þetta sameiginlegt áhugamál okkar. Svo hafa foreldrar mínir staðið þétt við bakið á mér frá því að ég byrjaði, sem er algjörlega ómetanlegt. Einnig virkja ég alla í fjölskyldunni þegar það er brjálað að gera, til dæmis til sauma merki í, verð- og stærðarmerkja vörur og annað smálegt,“ segir Sif.

Nóna

Mjúk og falleg ull

Merínoullin kemur af merínokindum sem eru upprunalega frá Spáni. Ullin er fíngerðari en venjuleg ull og stingur ekki. Þess vegna hentar hún einstaklega vel fyrir litla fólkið. Einangrunareiginleikar merínoullar eru einstakir og þar að auki er hún létt og andar vel. Merínoullin er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur aflagist og krumpist við notkun og hafa viðskiptavinir talað um að flíkurnar hreinlega stækki með barninu. „Dúskarnir sem við notum eru úr gervifeldi enda erum við fjölskyldan miklir dýravinir,“ segir Sif.

Nóna

Nánari upplýsingar má nálgast á nonaiceland.is

Facebook: nonaiceland

Instagram: nonaiceland

Sími: 770-8121

Netpóstur: nonaiceland@nonaiceland.is

NónaNóna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum