fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Mía & Míó: Hágæða vörur fyrir börnin

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 14. desember 2018 12:00

Jólagjöfin fæst í Mía & Míó

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mía & Míó er barnavöruverslun sem leggur mikið upp úr vali á hágæða vörum.

Mía & Míó

Kidwild:

Dúnmjúk barnaföt úr lífrænni bómull sem aldrei hefur komist í snertingu við skaðleg efni og er öll unnin á siðferðislegan máta. Fötin eru einstaklega vönduð og koma í stærðum fyrir 0–5 ára. Hönnunin er tímalaus og einkennist af jarðarlitum sem henta bæði stelpum og strákum.

Mía og Míó
Ungbarnafötin koma í stærðum fyrir 0–18 mánaða.

 

Mía & Míó
Þessi bómullarföt koma í stærðum fyrir 0–2 ára og nokkrum litum.

 

Mía & Míó
Fötin eru þægileg við leik og einstaklega mjúk, þessi koma í stærðum fyrir 0–5 ára.


Mountain buggy:

Mountain buggy er þekkt um allan heim fyrir einstaka hönnun á vögnum og kerrum. Þróunin á vörum þeirra undanfarna áratugi byggist á þörfum nútíma foreldra þar sem einfaldleiki, lipurð og tækni er í fyrirrúmi. Hönnunin er lausnamiðuð og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru foreldrar með eitt barn eða fleiri, borgarbúar, útivistargarpar, heimshornaflakkarar eða annað.

Mía & Míó
Mountain buggy er einnig með bílstóla á markaðnum fyrir börn frá fæðingu og allt upp 12 ára. Þeir hafa hlotið einróma lof, þá sérstaklega snúningsbílstóllinn, Safe Rotate, en hann er frábær sem stóll númer tvö og er fyrir börn í þyngd 0–18 kíló.

Mía & Míó
Systkinakerran er jafn breið og kerran fyrir eitt barn á meðan sætin halda góðri breidd. Hægt er að púsla kerrunni og systkinakerrunni saman við burðarrúmið, ömmusætið og bílstólinn eins og hentar hverju sinni.

 

Mía & Míó
Bílstóllinn er bylting í sínum flokki en hann er festur í bílinn með ISOFIX, snýst 360 gráður og læstist á hverjum 90 gráðum. Svo er hægt að stilla hallann á sætinu eftir því hvernig barninu hentar.

 

Bloom baby

Coco go ömmustólarnir hafa verið gríðarlega vinsælir frá því þeir komu fyrst til landsins og oft myndast bið eftir þeim. Efnið í sætinu lífræn bómull, viðurinn er fenginn úr sjálfbærri ræktun og allt ál og plast er endurunnið efni. Hönnunin er falleg og praktísk, stóllinn getur bæði ruggað og staðið, setið í þremur mismunandi stillingum og svo er rafhlöðuknúinn titringur með tveimur stillingum. Það fer með eindæmum vel um lítil börn í þessum stól á meðan hann er einnig fínasta stofustáss.

Mía og Míó
Coco go ömmustólar

Falleg stjörnukort

Stjörnukortin eru handmáluð fyrir hvern og einn og afar persónuleg. Þar koma fram allar fæðingarupplýsingar ásamt stjörnumerkinu. Hægt er að sníða myndirnar að hverjum og einum svo hver fái þann litatón sem hann óskar eftir. Myndirnar prýða ófá barnaherbergin í dag og er þetta mjög vinsælt í skírnar- og jólagjafir.

Mía og Míó
Stjörnukort fyrir barnið.

 

Nánari upplýsingar á miamio.is

Facebook-síða: Mía & Míó

Instagram: miaogmio 

Netpóstur: miamio@miamio.is

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum