fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Golfklúbburinn – Golf allt árið og fyrsta flokks veitingar

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 20. nóvember 2018 10:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Golfklúbburinn Holtagörðum, Holtavegi 10, er í senn heilsárs félagsmiðstöð fyrir golfara og virkilega notalegur veitingastaður sem býður upp á frábæran mat á hagstæðu verði. Á staðnum eru fimm golfhermar af bestu gerð en staðurinn er jafnframt framúrskarandi sportbar þar sem gott er að fylgjast með enska boltanum og alls konar öðrum íþróttaviðburðum á fjölda sjónvarpa og eru stærri viðburðir sýndir á risaskjáum.

Í hverjum golfhermi geta verið allt að átta kylfingar að leika í einu og það fer vel um allt að 12 manns við hvern hermi. Gestir geta hvort tveggja notast við eigin kylfur eða fengið leigðar kylfur á staðnum. Einnig er í boði að geyma kylfurnar sínar á staðnum.

Golfhermarnir henta fólki með alls konar kunnáttu og byrjendur eru svo sannarlega vel komnir í Golfklúbbinn og fá kennslu. Almennt má fullyrða að hvergi sé betra að æfa sveifluna en í golfhermum.

 Ekki bara fyrir kylfinga

Þeir sem hafa ekki áhuga á golfi geta líka átt góðar stundir í Golfklúbbnum. Eins og fyrr segir eru íþróttaviðburðir sýndir á fjölda skjáa og matseðilinn hentar öllum og er til dæmis kjörið fyrir fjölskylduna að eiga góða stund á staðnum yfir máltíð.

Golfklúbburinn hentar líka vel fyrir hvers konar hópefli og tekur á móti hópum frá 10 upp í yfir 100 manns. Hægt er að leigja sér sal fyrir hvers konar viðburði. Best er að hafa samband í síma 820-9111 og fá upplýsingar og tilboð fyrir hópinn eða viðburðinn þinn.

Á matseðlinum eru fjölbreyttir hamborgararéttir, salöt, steikur, kjúklingaspjót, fiskréttir og margt fleira. Verðinu er stillt í hóf en gæðum jafnframt haldið uppi.

Vert er að minna á að hægt er að kaupa gjafabréf að Golfklúbbnum á staðnum fyrir upphæð að eigin vali. Þetta er til dæmis góð jólagjöf sem myndi gleðja margan kylfinginn.

Golfklúbburinn er opinn alla daga vikunnar frá kl. 10.00 til 23.00.  Sjá nánar á vefsíðunni golfklubburinn.is og Facebook-síðunni Golfklúbburinn.

 

Ert þú að fara að djamma?

Ert þú að fara að djamma? Það er upplagt að hefja kvöldið á skemmtilegri sveiflu í Golfklúbbnum, í boði eru sérstök djammtilboð í golf og veitingar á föstudags- og laugardagseftirmiðdögum.

Grunnpakki  er ein klukkustund í golfhermi og 8 drykkir á 10.000 kr. Gildir föstudaga og laugardaga frá 17.00. Hver aukaklukkustund kostar 7.000 (golf í 1 klst. og 4 drykkir).

 

Verðstríð –  Komdu og prófaðu

 STRÍÐSTILBOÐ frá 1.290 kr.!

Golfklúbburinn er í stríði! Nánar tiltekið í verðstríði við frægan, sænskan húsgagnasala í Garðabænum. Stríð vinna sig ekki sjálf. Við þurfum þína hjálp. Golfklúbburinn útvegar vopnin, þú munn og maga.

Vopnabúrið er:

  • góður matur
  • gott verð – hangikjöt eða mexíkósk kjúklingasúpa á 1.290, hádegishamborgari eða fiskur og franskar á 1.790 – sódavatn og gos er á 210.
  • huggulegur staður
  • góð þjónusta
  • miðsvæðis – þú sparar ekki með langferðum
  • næg bílastæði – ekki eyða tíma í að leita að bílastæði

Best er að sannreyna fullyrðingarnar hér að framan með því að koma og prófa!

Saman vinnum við þetta stríð!

Ath. Gildir á meðan birgðir endast, takmarkað magn í hverju hádegi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum