fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Fakó: Ljós í heimsklassa og heillandi fjölbreytni

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 24. október 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Feðginin Jóhannes Ómar Sigurðsson og Herdís Telma Jóhannesdóttir stofnuðu heildverslunina Esjufell árið 2010 og lögðu þar megináherslu á innflutning á ljósum og öðrum húsbúnaði frá danska gæðaframleiðandanum House Doctor. Árið 2013 opnaði Esjufell verslunina FAKÓ á Laugavegi. Vorið 2016 var síðan FAKÓ HÚSGÖGN opnuð í Ármúla 7 og varð hluti af þeirri grósku sem einkennt hefur Múlahverfið síðustu ár sem ekki síst birtist í fjölbreyttum verslunum með húsgögn og húsbúnað.

FAKÓ er sannkallað fjölskyldufyrirtæki en þær systur Herdís Thelma og Ylfa Björg reka fyrirtækið ásamt Jóhannesi föður sínum. Gífurleg fjölbreytni einkennir FAKÓ en ljósin frá House Doctor eru líklega mest áberandi í vöruúrvalinu. Þar er meðal annars hægt að fá borðlampa, standlampa, veggljós, strengjaljós og skerma.

„House Doctor er með fallegar vörur til heimilisins, allt frá hnífapörum upp í húsgögn og ljós. Öll hönnun er undir stjórn systkinanna sem stofnuðu fyrirtækið en House Doctor er fjölskyldufyrirtæki rétt eins og FAKÓ. Núna eru brass og málmtónar áberandi í ljósunum frá House Doctor en það gildir um híbýlaprýði eins og föt að það eru tískusveiflur þó að þær séu ekki eins hraðar í fyrrnefnda heiminum,“ segir Herdís.

House Doctor er rómað gæðamerki eins og svo algengt er með danska hönnun og húsgagnaframleiðslu. Ljósin hafa auk þess þá skemmtilegu og óvenjulegu sérstöðu að hver og einn eigandi þeirra getur gefið þeim sinn sérstaka blæ: „Það er hægt að gera ljósin persónulegri með því að skipta út perum, velja snúrur og svo er hægt að festa hólka á snúrurnar. Við erum með mjög gott úrval af ólíkum perum til að nota í lampana, til dæmis demantaperur, stórar og litlar skrautperur,“ segir Ylfa.

Veggljósin koma sterk inn

FAKÓ er einnig með veggljós og kertastjaka frá Vanilla Fly. Þá er FAKÓ nýbúið að taka inn merki sem heitir Living By Colors og er þar um að ræða snúrur og perustæði úr silíkoni í mörgum litum, og þær systur eru mjög spenntar fyrir þessum nýju vörum sem eru líklegar til að slá í gegn hjá viðskiptavinum verslunarinnar.

„Ein er sú þróun sem hefur orðið nýlega, að veggljós eru að verða algengari. Loftljósin eru vissulega algeng áfram en það færist í vöxt að fólk setji frekar upp veggljós og fái þá mjög kósí birtu,“ segir Herdís og Ylfa bætir við að sums staðar þar sem eru tvö göt fyrir veggljós kjósi fólk að setja bara ljós í annað gatið og loka hinu.

Ylfa bætir einnig við að ljósin frá House Doctor veiti ekki bara góða birtu heldur séu þau sem slík listmunir og híbýlaprýði og falleg á að horfa hvort sem kveikt er á þeim eða ekki.

Gæði skipta máli við val á kertum

Frábært úrval af kertum og kertastjökum er í FAKÓ sem henta afar vel til gjafa, til dæmis jólagjafa. „Við leggjum mikla áherslu á að selja eingöngu mjög góð kerti þannig að til dæmis þurfi fólk ekki að hafa áhyggjur af eldhættu varðandi þau. Kertin hjá okkur eru öll framleidd í Danmörku en Danir eru mjög stífir á öryggisstaðla varðandi kerti og gera þar ríkari kröfur en flestar aðrar þjóðir,“ segir Herdís.

Af miklu úrvali í FAKÓ eru ónefndar inni- og útiluktir, ljósaseríur, eldstæði til að hafa úti og kyndlar, en þetta eru ljós sem henta afar vel á pallinn eða veröndina og skapa þar huggulega stemningu í skammdeginu.

Umhverfisvænar áherslur

Meraki er eitt af undirmerkjum House Doctor, með sérstaka áherslu á snyrtivörur og afar vönduð ilmkerti. „Þeir framleiða kertin sín með umhverfisvænum hætti, nota sojavax og náttúruleg efni í kveikiþræðina,“ segir Herdís, og Ylfa bætir við að þessar umhverfisvænu áherslur séu gegnumgangandi í öllu vöruúrvalinu og séu t.d. hluti af stefnu House Doctor. Áherslan er á náttúruleg efni, aukaefni eru í lágmarki og reynt er skilja eftir sem minnst vistspor við framleiðsluna.

Margir gleyma sér í búðunum í Múlahverfinu

„Fólk hefur sagt mér að það geti gleymt sér í versluninni í allt að tvo tíma því hér er margt að skoða,“ segir Herdís. Gífurleg fjölbreytni einkennir vöruúrvalið í FAKÓ auk þess sem þar eru afar margir fallegir hlutir sem gleðja augað. Fólki þykir því gaman að koma í verslunina en í Múlahverfinu eru margar aðrar verslanir með húsgögn og húsbúnað. „Þetta styður hvert annað og hér í fjölbreytninni er líklegt að fólk finni það sem það leitar að,“ segir Herdís.

Auk þess sem hér hefur verið nefnt áður selur FAKÓ sælkeramatvörur frá Nicholas Vahé, skrifstofuvörur fyrir skapandi fólk frá Monograph og margt fleira, þannig að fjölbreytnin er gífurleg.

Það er líka hægt að versla í FAKÓ á netinu, nokkuð sem kemur sér til dæmis vel fyrir fólk á landsbyggðinni en verslunin sendir vörur hvert á land sem er. Sjá nánar á www.fako.is.

Verslunin í Ármúla 7 er hins vegar opin mánudaga til föstudaga frá 10 til 18 og á laugardögum frá 11 til 16. Símanúmer er 568-0708.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum