fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
FókusKynning

Þunnbotna, eldbökuð pizza og ekta ítölsk fjölskyldustemning

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 28. júní 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Pabbi vann í aukavinnu hjá Eldsmiðjunni við ýmis störf á sínum tíma. Ég fæddist árið 1987 og þá hoppaði pabbi bara beint á vakt af fæðingardeildinni,“ segir Evert Austmann Ellertsson, bakari hjá Eldofninum í Grímsbæ, fjölskyldufyrirtæki þar sem foreldrar, synir og annað frábært starfsfólk leggja alúð sína í að búa til framúrskarandi pizzur og veita góða þjónustu. Eins og þessi frásögn Everts gefur til kynna hefur fjölskyldan lengi verið viðriðin pizzugerð.

Á Eldofninum eru eingöngu í boði 12 tommu pizzur sem bakaðar eru í eldofni og er eingöngu notaður eldiviður við baksturinn.

Árið 2008, ári áður en Eldofninn var opnaður, fóru hjónin Ellert Austmann Ingimundarson og Eva Karlsdóttir til Ítalíu í leit að hentugum ofni. Þau komu heim með eldofn með snúningsplötu, sem tryggir í senn frábæran bakstur, ósvikið viðarofnsbragð og hraða þjónustu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Eftir að við setjum pizzuna inn í ofninn þá ýtum við bara á einn takka, pizzan byrjar að snúast og bakast jafnt og þétt á tveimur mínútum,“ segir Evert.

Snúningsplatan í ofninum skapar sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt er að afgreiða pizzurnar mjög hratt en þær eru þó afar jafnt og vel bakaðar.

„Við getum sett inn átta pizzur í einu en þegar svona mikið er að gera eins og er núorðið þá þarf að vera með mann á ofninum til að koma pizzunum inn og út.“

Allt eldað frá grunni

„Við búum til allt frá grunni, sósurnar okkar eru án aðfenginna aukaefna og í hana eru notaðir plómutómatar; það sama má segja um hvítlauksolíuna og Eldofnsolíuna okkar sem er sterk chili-olía, en uppistaðan í þessum olíum okkar er ekta ólífuolía, ekki repjuolía. Rauðlaukinn skerum við niður hérna og kryddið sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir Evert.

En hvaða pizzur eru vinsælastar?

„Vinsælustu pizzurnar eru yfirleitt þær sem eru kenndar við okkur bakarana og við höfum sett saman eftir okkar smekk. Sigga Spes pizzan er til dæmis búin að vera vinsælasta pizzan hér í 3–4 ár en á henni eru sveppir, skorið pepperóní, ananas, svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur, rjómaostur og óreganó. Þessi pizza slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Opin ítölsk stemning í matsalnum

Veitingasalurinn á Eldofninum er bæði huggulegur og skemmtilegur. Allt er galopið svo viðskiptavinir sjá bakarana að störfum, þeyta pizzum upp í loftið.

„Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis að sjá pizzurnar snúast í ofninum,“ segir Evert og honum líkar það vel að matargestir sjái fjölskylduna að störfum.

Tíu prósenta afsláttur er veittur af mat sem er sóttur og einnig eru alltaf í gangi hádegistilboð virka daga frá 11.30 til 14.00 en þá er staðurinn yfirleitt þéttsetinn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Matseðill og upplýsingar um tilboð má finna á heimasíðu staðarins, eldofninn.is

Eldofninn er opinn þriðjudaga til fimmtudaga frá kl. 11.30 til 21.00, föstudaga til kl. 22.00.

Á laugardögum er opið frá kl. 17.00 til 22.00 og á sunnudögum frá 17.00 til 21.00.

Á mánudögum er lokað – eins og á svo mörgum fjölskyldureknum veitingastöðum í Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum