fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. mars 2026 14:12

Úr flugstjórnarklefa TF-SIF. Mynd/Landhelgisgæslan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Litlar breytingar eru milli ára á trausti til flestra þeirra stofnana sem eru mældar. Annað árið í röð er þjóðkirkjan sú stofnun sem hækkar mest en traust til hennar heldur áfram að aukast.

Eftir mikla lækkun í fyrra eykst traust til borgarstjórnar marktækt þrátt fyrir að vera sú stofnun sem nýtur minnsts trausts. Þeim fækkar þó mest milli ára sem bera mikið traust til ríkissáttasemjara.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýs Þjóðarpúls Gallup.

Ríflega 83% landsmanna bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar og er hún sú stofnun sem nýtur mests trausts. Þó hefur dregið úr trausti til hennar tvö ár í röð en þeim sem bera mikið traust til hennar fækkar um þrjú prósentustig frá í fyrra.

Rúmlega 69% bera mikið traust til lögreglunnar og er það svipað hlutfall og í síðustu mælingu.

Tveir af hverjum þremur bera mikið traust til Háskóla Íslands, fjórum prósentustigum færri en í fyrra. Naumlega 59% bera mikið traust til heilbrigðiskerfisins en það eru fimm prósentustigum færri en í fyrra.

Tæplega 56% bera mikið traust til embættis forseta Íslands og eru það fjórum prósentustigum færri en fyrir ári. Rúmlega 48% bera mikið traust til dómskerfisins en það eru þremur prósentustigum fleiri en í fyrra og hefur traust til dómskerfisins heldur verið að aukast undanfarin ár.

Aðeins færri, eða nær 48%, bera mikið traust til þjóðkirkjunnar, fimm prósentustigum fleiri en í fyrra en þetta er annað árið í röð sem traust til þjóðkirkjunnar eykst.

Sömuleiðis bera nær 48% mikið traust til umboðsmanns Alþingis og eru það fimm prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Seðlabankinn nýtur mikils trausts næstum 45% landsmanna og eru það tveimur prósentustigum fleiri en á sama tíma í fyrra.

Hátt í 43% bera mikið traust til ríkissáttasemjara og eru það sex prósentustigum færri en fyrir ári. Tæplega 39% bera mikið traust til ríkissaksóknara, sem er svipuð niðurstaða og í fyrra. Alþingi nýtur mikils trausts rúmlega 35% landsmanna, álíka mikið og í síðustu mælingu. Nær 21% ber mikið traust til bankakerfisins, jafnmargir og í fyrra.

Rétt rúm 13% bera mikið traust til borgarstjórnar Reykjavíkur en það eru fjórum prósentustigum fleiri en á sama tíma í fyrra þegar traust til borgarstjórnar mældist tæp 9%.

Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 12. – 25. febrúar síðastliðinn. Heildarúrtaksstærð var 1.980 og þátttökuhlutfall var 39,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti