fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Arkitekt dauðans sendi yfir 500 skilaboð á Tinder – Vefleit sýnir viðurstyggilegt klám tengt pyntingum og nauðgunum

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. mars 2026 18:30

Rex Heuermann

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rex Heuermann sem grunaður er um Gilgo Beach raðmorðin var með Tinder aðgang og hafði samband við vændiskonur í fleiri en 500 skipti samkvæmt nýjum gögnum með lögð voru fram í máli hans.

Heuermann, sem er ákærður fyrir að hafa myrt sjö konur, átti reglulega í ógeðfelldum samskiptum við að minnsta kosti 60 vændiskonur og leitaði reglulega á netinu að viðurstyggilegu klámi sem sýndi konur „grátandi, marðar og stungnar“, samkvæmt dómsskjölum sem saksóknarar í Suffolk-sýslu lögðu fram í síðustu viku.

Heuermann, sem var giftur tveggja barna faðir sem starfaði í New York á þeim tíma, notaði nafnið Andy á stefnumótaappinu.

Skrifstofa héraðssaksóknarans Rays Tierney lagði fram kröfu í síðustu viku þar sem rök voru færð gegn því að sönnunargögnum yrði vísað frá í komandi réttarhöldum yfir Heuermann. Í kröfunni komu fram nýjar upplýsingar um ógeðfellda netfíkn Heuermann, þar á meðal leit að myndum af fjölskyldum meintra fórnarlamba hans að syrgja andlát þeirra.

Konurnar sjö sem Heuermann er ákærður fyrir að hafa myrt.

Heuermann var handtekinn í júlí 2023 fyrir morð sem áttu sér stað í tvo áratugi og búist er við að réttarhöld yfir honum hefjist í september.

Dómsskjöl sýna að Tinder-reikningur hans var á einnota síma (e. burner phone) sem virkjaðist í júlí 2019. Þrátt fyrir að Heuermann hafi ekki verið að svæpa konur á forritinu, þá hafði hann „umtalsverð samskipti“ við tugi vændiskvenna á forritinu, að sögn saksóknara.

Heuermann er sakaður um að hafa notað einn síma til að hafa samband við 56 vændiskonur eða nuddstofur meira en 300 sinnum og hringt í 61 símanúmer tengt vændi meira en 220 sinnum, samkvæmt dómsskjölunum.

„Ekki er hægt að afskrifa mikilvægi þess að sakborningur notaði „burner phone“ nýlega til að hafa samband við vændisstarfsmenn,“ skrifuðu saksóknarar í dómsskjölunum.

„Þessi sönnunargögn voru ekki lögð fram til að rægja sakborninginn fyrir kynferðislega hegðun hans, eins og hann heldur fram, heldur til að staðfesta hver sakborningurinn var og hvernig hann starfaði.“

Saksóknarar fullyrtu að Heuermann hefði gert „umtalsverðar leitir að klámi sem tengdist bindingum, pyntingum, nauðgunum, snuff myndböndum, og grátandi konum, konum með marbletti og stungnum konum og/eða stúlkum.“

Í gögnunum segir að hinn 62 ára gamli Heuermann hafi einnig leitað að „myndum af fjölskyldumeðlimum Gilgo-fjórmenninganna sem syrgðu hin látnu,“ segir í gögnunum. Gilgo-fjórmenningarnir vísa til fjögurra meintra fórnarlamba Heuermanns sem fundust árið 2010.

Lögreglumaður í Suffolk sagði að „skýrar sannanir“ væru fyrir því að Heuermann væri „kynferðislegur sadisti“, samkvæmt saksóknara.

Heuermann er sakaður um að hafa myrt sjö vændiskonur og losað sig við lík þeirra á hrjóstrugum svæðum á Long Island nálægt Gilgo-ströndinni á árunum 1993 til 2010. Hann hefur neitað sök í öllum ákæruliðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Valgarður lýsir áhyggjum sínum: Hikar við að leggja sömu verkefni fyrir nemendur sína og hann gerði áður

Valgarður lýsir áhyggjum sínum: Hikar við að leggja sömu verkefni fyrir nemendur sína og hann gerði áður
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“

Ofbeldi Ólafs biskups gegn dóttur hans: „Þegar þú deyrð Guðrún Ebba, þá tek ég á móti þér og við verðum alltaf saman“
Fréttir
Í gær

Ógnaði fólki með hnífi á skemmtistað

Ógnaði fólki með hnífi á skemmtistað
Fréttir
Í gær

Björn hrekur fullyrðingu um afdrif sjávarauðlinda Íslendinga í ESB – „Munum við geta vaðið í gegnum áróðurinn?“

Björn hrekur fullyrðingu um afdrif sjávarauðlinda Íslendinga í ESB – „Munum við geta vaðið í gegnum áróðurinn?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi

Varað við eldingum á Höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur

Laufeyland opnar í takmarkaðan tíma – Stemning og upplifun fyrir alla aðdáendur