fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fréttir

Valgarður lýsir áhyggjum sínum: Hikar við að leggja sömu verkefni fyrir nemendur sína og hann gerði áður

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valgarður Lyngdal Jónsson, kennari til 30 ára, segist í dag hika við að leggja fyrir sömu verkefni fyrir nemendur og hann gerði áður. Eitt sinn lagði hann til dæmis Gunnlaugs sögu fyrir börn í 9. bekk og sendi þau heim með lestraráætlun. Í dag kveðst hann hins vegar hika við að leggja slík verkefni fyrir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag en þar er rætt við Valgarð og Sigríði Ólafsdóttur, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Í viðtalinu segir Valgarður að tímarnir hafi breyst; foreldrar vinni lengur, séu minna með börnum sínum og aðhald varðandi heimanám hafi minnkað. Þá sé læsi barna allt öðruvísi í dag en það var fyrir 30 árum. Upplýsingar sem þau sækja sér séu í formi stuttra texta og myndbrota.

Valgarður segir að í dag virðist önnur færni vera á undanhaldi, til dæmis að setjast niður og lesa bækur og hann kveðst hafa áhyggjur af því. „Mjög margir unglingar hafa ekki eirð í sér til þess að setjast niður með bók og lesa hana blaðsíðu fyrir blaðsíðu, orð fyrir orð, allan textann.”

Valgarður kveðst hafa áhyggjur af því að kennarar – hann þar á meðal – séu farnir að koma of mikið til móts við nemendur. Upplifir hann að kröfurnar í dag séu minni.

Í Morgunblaðinu er einnig rætt ítarlega við Sigríði Ólafsdóttur sem segir samfélagið komið á hættulegan stað ef við erum farin að minnka kröfur til nemenda.

„Það gefur auga leið að því minni kröfur sem við gerum, því minni væntingar sem við höfum um framfarir í námi nemenda, þeim mun minni verður árangurinn – eðlilega,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki

Könnun: Viðreisnarfólk hrifið af veggjöldum en Sósíalistar alls ekki
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs

Bónus og Hagkaup lækka verð á hundruðum vara vegna nýs innkaupasamstarfs
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Salmonella fannst í hamborgara

Salmonella fannst í hamborgara
Fréttir
Í gær

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan

Ekkert verður af samruna Arion og Kviku – Þetta er ástæðan
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir

Sauð upp úr á Kópaskeri þegar tveimur aðkomumönnum lenti saman – Báðir ákærðir og sakfelldir
Fréttir
Í gær

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“

Varaborgarfulltrúi varð fyrir opinberun í gær – „Það er enginn að hlusta“
Fréttir
Í gær

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði

Vægur dómur fallinn yfir Helga Bjarti vegna kynferðisbrots gegn dreng í Hafnarfirði