fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Vísbendingar um aðkomu Rússa að stríðinu í Miðausturlöndum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. mars 2026 13:41

Pútín reynir að fullvissa Rússa að hann gæti þeirra hvar sem er. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússland hefur veitt Íran upplýsingar um staðsetningu bandarískra hersveita og hergagna í Miðausturlöndum. Þetta hefur bandaríska stórblaðið Washington Post eftir þremur embættismönnum sem þekkja til málsins.

Um er að ræða fyrstu vísbendingarnar um aðkomu Rússa að átökunum í Miðausturlöndum þó það sé aðeins með óbeinum hætti. Opinberlega hafa rússnesk stjórnvöld hvatt til þess að átökunum ljúki.

Átökin hafa stigmagnast hratt síðustu daga en heimildir Washington Post herma að frá því að stríðið hófst fyrir tæpri viku hafi Rússar miðlað upplýsingum til Írans um staðsetningu bandarískra herskipa og flugvéla.

Embættismennirnir vildu ekki tjá sig undir nafni vegna þess hve viðkvæmt málið er.

Ekki liggur fyrir hversu víðtæk aðstoð Rússa er, en samkvæmt upplýsingum Washington Post veiktist geta íranska hersins til að staðsetja bandarískar hersveitir mjög strax á fyrstu dögum átakanna.

Á sunnudag létust sex bandarískir hermenn og nokkrir til viðbótar slösuðust þegar Íranir gerðu drónaárás á bandaríska herstöð í Kúveit. Íran hefur á sama tíma skotið þúsundum árásardróna og hundruðum eldflauga á bandarískar herstöðvar, sendiráð og borgaraleg skotmörk.

Á meðan hafa Bandaríkin og Ísrael staðið fyrir sameiginlegum loftárásum á meira en 2.000 skotmörk í Íran. Þar á meðal eru stöðvar fyrir langdrægar eldflaugar, eignir íranska flotans og aðrir hernaðarlegir innviðir, auk skotmarka sem tengjast stjórnvöldum landsins.

Talskona Hvíta hússins, Anna Kelly, vildi ekki tjá sig um mögulega aðstoð Rússlands í samtali við blaðið. Hún tók þó fram að geta Írana til að gera árásir og verjast árásum minnkuðu dag frá degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir