fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Svipt atvinnuleysisbótum eftir að hafa hafnað starfi í Grindavík – „Ég hálf panikaði við tilhugsunina“

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 13. mars 2026 08:00

Aníta Ósk Guðbjargardóttir treysti sér alls ekki til að taka atvinnutilboði frá Grindavík, sem miklar jarðhræringar hafa sett svip sinn á.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aníta Ósk Guðbjargardóttir segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við Vinnumálastofnun. Í annað sinn á innan við ári hefur Aníta Ósk verið svipt atvinnuleysisbótum tímabundið. Hún telur að í bæði skiptin hafi stofnunin verið of hörð í hennar í garð og sýnt aðstæðum hennar lítinn sem engan skilning. Í fyrra skiptið bauðst henni atvinna í Grindavík, fyrir milligöngu Vinnumálastofnunar, en Aníta Ósk hafnaði því boði. Hún segir að vegna aðstæðna í Grindavík og áfallastreituröskunar og kvíða sem hún glími við hafi hún engan veginn treyst sér til að vinna í bænum. Aníta Ósk gerir einnig athugasemdir við að Vinnumálastofnun hafi blandað dagvistun barns hennar inn í þessa ákvörðun að svipta hana bótunum.

Aníta Ósk segir að svipting bótanna vegna synjunar hennar við starfi í Grindavík hafi verið í maí á síðasta ári en yfirleitt er fólk svipt atvinnuleysisbótum í tvo mánuði ef það hafnar boði um vinnu:

„Í fyrsta lagi er ég með áfallastreituröskun og ég hálf panikaði við tilhugsunina,“ segir Aníta Ósk í samtali við DV.

Hún segist alls ekki hafa treyst sér til að vinna í Grindavík þar sem væru til að mynda sprungur og holur af völdum þeirra jarðhræringa sem gengið hafa yfir í næsta nágrenni bæjarins síðustu misseri. Aníta Ósk segist alls ekki hafa þorað að keyra sjálf til Grindavíkur en hafi ætlað sér að fara þangað með rútu en hætt við það. Segir hún að Vinnumálastofnun hafi ætlað að þvinga hana til að vinna á hættusvæði.

Breyti ekki neinu

Síðan Aníta Ósk hafnaði starfinu hefur verið lögð aukin áhersla á það af meðal annars yfirvöldum í Grindavík að öruggt sé að vera í bænum og búið sé að tryggja aðstæður þar eins og frekast sé unnt. Aðspurð um hvort það breyti nokkru um ótta hennar við að fara til bæjarins segir Aníta Ósk svo ekki vera og bendir á að hún sé alls ekki eina manneskjan sem treysti sér ekki til að fara til Grindavíkur eftir allt sem gengið hafi þar á. Áfallastreituröskunin og kvíðin sem hún glími við eigi enn fremur mikinn þátt í þessum ótta við að vera í Grindavík.

Aníta Ósk býr í Reykjanesbæ og það er ekki síst þess vegna sem henni var boðið starf í Grindavík. Það sem flækti atvinnuleitina einnig á þessum tíma var að barn Anítu Óskar var að bíða eftir leikskólaplássi sem það átti ekki að fá fyrr en í ágúst. Hún segir að hún og maður hennar hafi ekki haft efni á að hafa barnið hjá dagmóður þangað til og bakland fjölskyldunnar sé ekki mikið og því verið erfitt að fá pössun fyrir barnið yfir daginn en maður Anítu Óskar er í fullri vinnu. Aníta Ósk segist hafa komið því áleiðis til starfsfólks Vinnumálastofnunar hvernig aðstæður hennar með barnið væru en leggur áherslu á að hún hafi samt verið virk í atvinnuleitinni og sótt um fjölda starfa í gegnum Alfreð-appið en á það hafi lítið verið hlustað. Stofnunin hafi blandað dagvistun barnsins inn í ákvörðunina um sviptingu bótanna til að rökstyðja hana frekar. Það er Aníta Ósk ósátt við en í samskiptum hennar við Vinnumálastofnun kemur fram að stofnunin hafi sagt hana ekki vera virka í atvinnuleit á meðan barnið væri að bíða eftir leikskólaplássinu og ætti því ekki rétt á bótum.

Aníta Ósk andmælir því og segir að hún hafi sannarlega verið virk í atvinnuleit. Ef hún hefði fengið vinnu hafi hún verið tilbúin að finna einhverja lausn með barnið en auk áðurnefndra ástæðna hafi það verið henni erfitt að vinna í Grindavík vegna barnsins.

Skilningsleysi

Aníta Ósk segist ósátt við viðbrögð Vinnumálastofnunar og segir stofnunina ekki hafa sýnt henni neinn skilning:

„Þetta er varla ástæða til þess að vera með þessa stæla eins og þau voru með.“

Þetta hafi verið í eina skiptið sem hún hafi hafnað nokkru boði frá stofnuninni. Hún hafi annars mætt í öll viðtöl og á alla fundi sem hún hafi verið boðuð á.

Aníta Ósk var síðan aftur svipt atvinnuleysisbótunum tímabundið í síðasta mánuði. Hún segir að hún hafi verið boðuð í viðtal hjá Vinnumálastofnun en fengið viðtalstímanum breytt vegna veikinda en hún hafi síðan gleymt að mæta í nýja tímann. Starfsfólk stofnunarinnar hafi ekki gert tilraun til að ná sambandi við hana þegar ljóst var að hún væri ekki mætt og ekki sýnt því skilning að það sé hægt að gleyma tímasetningum þegar nóg er að gera við sjá um börn og þegar maður sé nýstiginn upp úr veikindum. Hún hafi reynt að útskýra þetta fyrir starfsfólki stofnunarinnar en hafi talað fyrir daufum eyrum.

Þessa síðari sviptingu hefur Aníta Ósk kært til úrskurðarnefndar velferðarmála en hún gerði það ekki í fyrra skiptið.

Hún er eins og áður segir ósátt við Vinnumálastofnun og segir sér hafa verið sýnd of mikil harka og skilningsleysi og þar að auki ósanngirni:

„Hlusta ekki einu sinni á mig.“

Aníta Ósk er þar af leiðandi tekjulaus í annað sinn á innan við ári og segir fjölskylduna nú treysta alfarið á tekjur manns hennar. Hún minnir á að það sé erfitt á Íslandi í dag að framfleyta fjölskyldu á tekjum einnar manneskju. Það sé ekki einu sinni hlaupið að því að gera það þótt báðir foreldrar séu með tekjur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist

Vilhjálmur: Eitthvað alvarlega rangt við stöðuna þegar þetta gerist
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Í gær

Áhrifavaldur í hrakningum á Íslandi – Þurfti að sofa í fjárhúsi – „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins“

Áhrifavaldur í hrakningum á Íslandi – Þurfti að sofa í fjárhúsi – „Heimskulegasta hugmynd mánaðarins“
Fréttir
Í gær

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“