fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Uppgjörið í Kópavogi vekur mikla athygli: Hagnaðurinn svakalegur og eiga verðbréf fyrir 180 milljónir

433
Fimmtudaginn 12. mars 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rekstur knattspyrnudeildar Breiðablik var umfangsmikill á árinu 2025 en velta ársins nam 1349 milljónum.

Félagið greiddi 6.052.389 kr. til umboðsmanna á árinu 2025, samanborið við 4.684.284 kr. á árinu 2024.

Hagnaður ársins var rúmlega 167 milljónir samanborið við tæplega 104 milljóna króna tap árið áður.

Sú staðreynd að liðið komst í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar útskýrir þennan mikla hagnað á síðustu leiktíð.

Gjöldin jukust til muna með góðum árangri en kostnaðurinn við þjálfun, leikmenn og yfirstjórn var 792 milljónir og hækkar um 200 milljónir á milli ára. Í heildina voru útgjöldin rúmir 1,2 milljarðar.

Deildin á 300 milljónir í handbært fé og hækkar sú tala um 120 milljónir á milli ára. Félagið á 183 milljónir í verðbréfum og hækkar sú tala hressilega á milli ára. Veltufjármunir eru í heildina rúmar 600 milljónir.

Skuldirnar eru í kringum 300 milljónir en þar eru fyrirframinnheimtar tekjur rúmar 100 milljónir og viðskiptaskuldir 170 milljónir.

Meira:
Algjört óveðurský í rekstrinum í Árbæ: Mígandi tap á síðasta ári – Tekjur hrundu en launagreiðslur stóðu í stað
Ársreikningur Víkings vekur mikla athygli – Gríðarlegt tap á síðasta ári en staðan sterk
Rosaleg skuldastaða í Eyjum vekur enn á ný athygli – Tekjur jukust hressilega á milli ára
Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári
Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri
Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Það að nota ólöglega sjónvarpsþjónustu getur kostað sitt – Margir lenda í þessu

Það að nota ólöglega sjónvarpsþjónustu getur kostað sitt – Margir lenda í þessu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Manchester City staðfestir tíðindin

Manchester City staðfestir tíðindin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Seldur frá Skaganum til Svíþjóðar – Spilar á Íslandi fram á mitt sumar

Seldur frá Skaganum til Svíþjóðar – Spilar á Íslandi fram á mitt sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Opinbera hvað Maguire sagði sem varð til þess að bann hans var þyngt

Opinbera hvað Maguire sagði sem varð til þess að bann hans var þyngt
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hið virta blað segir að þess vegna leiði Liverpool kapphlaupið

Hið virta blað segir að þess vegna leiði Liverpool kapphlaupið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

City eltist við mjög efnilegan bakvörð

City eltist við mjög efnilegan bakvörð
433Sport
Í gær

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband