fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. mars 2026 11:49

Eru eldri borgarar að verða of margir?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlutfall eldri borgara á Íslandi, það er 65 ára og eldri, er nú 27 prósent og hefur aldrei verið hærra. Fyrir tíu árum var hlutfallið 23,9 prósent.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Aldurssamsetning þjóðarinnar hefur breyst töluvert á undanförnum áratugum. Börnum hefur fækkað en eldri borgurum fjölgað. Hlutfall fólks undir tvítugu hefur lækkað úr 45,9 prósent í 40,3 á tíu árum.

Mannfjöldi í ársbyrjun var 394.324 sem var fjölgun um 4.880 á einu ári, það er 1,3 prósent. Karlar voru 202.181, konur 191.927 og kynsegin eða annað 216.

Mesta fólksfjölgunin er var á Suðurlandi, það er 3,7 prósent, á meðan fjölgun á höfuðborgarsvæðinu var 1,1 prósent. Í Árborg var fjölgunin 5 prósent og 5,4 prósent í Ölfusi. Eini landshlutinn þar sem var fólksfækkun var Austurland, það er um 0,1 prósent og munar mestu um 0,4 prósenta fækkun í Fjarðabyggð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“