fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 11. mars 2026 17:30

Eiríkur Rögnvaldsson íslenskufræðingur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði, segir að íslensk tunga myndi eflast við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Dæmin sýni það.

„Eitt af því sem skiptir máli við mat á því hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið er staða íslenskunnar,“ segir Eiríkur í færslu á samfélagsmiðlum í dag.

Ljóst sé að staða íslenskunnar myndi styrkjast með inngöngu. Sambandið styðji vel við þjóðtungur.

„Evrópusambandið hefur frá upphafi lagt áherslu á að virða þjóðtungur sambandsríkjanna og hlúa að þeim, og hefur varið miklu fé í margs konar þróunar- og uppbyggingarverkefni á sviði þýðinga og máltækni,“ segir Eiríkur. „Ísland hefur tekið þátt í – og íslenskan notið góðs af – ýmsum þessara verkefna í krafti aðildar okkar að Evrópska efnahagssvæðinu.“

Bendir hann á að þegar nýtt ríki er tekið inn í Evrópusambandið bætist opinbert tungumál þess í hóp opinberra tungumála Evrópusambandsins.

„Það myndi gagnast íslenskunni á ýmsan hátt, m.a. með auknum þýðingum og túlkun milli íslensku og annarra tungumála,“ segir hann og nefnir dæmi þessu til stuðnings. „Það stuðlaði t.d. að verulegri eflingu írskunnar þegar hún varð eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni