fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. mars 2026 10:30

Bílastæðin kosta sitt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvers vegna Ísland sé ekki með samræmdan bílastæðapassa fyrir alla eða flesta ferðamannastaði?“ spyr ferðamaður á samfélagsmiðlinum Reddit.

Spyr hann hvort þetta myndi ekki gera lífið auðveldara fyrir ferðamenn og aðra gesti. Í dag þurfi þeir að rífa upp veskið í hvert skipti sem þeir koma að áhugaverðum stað. Langflestir ferðamannastaðir rukki fyrir bílastæðin.

„Þetta gæti verið 3, 5, 7 eða 10 daga passi og ferðamenn gætu valið að kaupa passa eða skrá bílaleigubílinn þannig að þeir geti lagt áhyggjulausir eða greitt við hvern stað, hvort sem þeir velja,“ segir hann. „Ég myndi miklu frekar vilja borga einu sinni og síðan ekki þurfa hugsa um þetta meir. Í stað þess að þurfa að greiða við hvern foss, að þurfa að athuga verðið í hvert sinn og eyða 5 til 10 mínútum að reyna að borga í einhverju appi.“

Sjá einnig:

Rukkað fyrir bílastæði á að minnsta kosti 38 ferðamannastöðum – Sjáðu listann og verðin

Hafa margir brugðist við og sumir lýst yfir efasemdum um að þessi leið sé gerleg. Bæði vegna þess að margir staðirnir eru í einkaeigu og vegna þess að þeir græða mikið á núverandi fyrirkomulagi.

„Þó að þessi hugmynd hljómi vel þá eru þeir að græða þúsundir dollara á hverjum einasta degi ársins á því að rukka rútur og bílaleigubíla,“ segir einn netverji í athugasemdum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“