fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. mars 2026 15:28

Maurasmygl er sístækkandi vandamál í Kenía.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínverskur maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í Kenía, grunaður um maurasmygl. Maðurinn var gripinn á flugvelli með á þriðja þúsund maura í farangrinum.

Fréttastofan Reuters greinir frá þessu.

Maðurinn, Zhang Kequn 27 ára að aldri, var handtekinn á þriðjudag á alþjóðaflugvellinum í Nairobi, höfuðborg Kenía. Fundust um 2.200 lifandi garðmaurar í farangrinum hans.

Er talið að Zhang hafi verið að smygla maurunum úr landi. En hann hefur áður komist í kast við lögin í Kenía og verið settur í farbann.

Maurasafnarar borga fúlgur fjár til þess að fá sjaldgæfar tegundir af maurum. Eru þeir síðan geymdir og ræktaðir í gegnsæjum búrum.

Maurarnir sem fundust í fórum Zhang voru pakkaðir inn í glær tilraunaglös með bómull í. Samkvæmt fréttinni hefur hann þegar bent á þrjá einstaklinga sem seldu honum maurana.

Maurasmygl er að verða sífellt algengara. Í fyrra voru fjórir menn handteknir og sektaðir um tæpa milljón króna hver fyrir að reyna að smygla sjaldgæfum maurum úr landi. En fjölbreytt lífríki maura er talið mikilvægt fyrir vistkerfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Í gær

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision
Fréttir
Í gær

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“

Jón Trausti skýtur föstum skotum á Stefán Einar og Miðflokkinn – „Gerir enga tilraun til að vera eða virðast óháður“
Fréttir
Í gær

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina

Krabbameinssjúklingi synjað um bætur – Segist vera lömuð eftir meðferðina