fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
433Sport

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

433
Fimmtudaginn 12. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðjumaðurinn Douglas Luiz hefur opinberað nýtt samband sitt eftir að langtímasambandi hans við knattspyrnukonuna Alisha Lehmann lauk á síðasta ári.

Luiz, sem er 27 ára gamall og leikur með Aston Villa, hefur nú verið orðaður við brasilíska fyrirsætuna og áhrifavaldinn Duda Gaspar, sem er 19 ára gömul og búsett í London.

Getty Images

Duda birti nýlega mynd af þeim saman á Instagram þar sem hún faðmar Luiz. Með myndinni skrifaði hún. „Þú ert mitt öryggi,“ ásamt hjarta.

Luiz birti einnig myndina á sínum samfélagsmiðlum og skrifaði. „Að gera þig hamingjusama verður forgangsverkefni mitt.“

Duda Gaspar er dóttir fyrrverandi brasilíska landsliðsmannsins Edu Gaspar, sem lék meðal annars með Arsenal, Corinthians og Valencia á ferlinum. Edu var á síðasta ári ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Nottingham Forest.

Áður var Luiz í fjögurra ára sambandi við svissnesku knattspyrnukonuna Alisha Lehmann, sem hefur verið kölluð ein sú vinsælasta í kvennaknattspyrnu. Hún hefur sjálf einnig haldið áfram með lífið og hefur undanfarið deilt myndum með nýjum kærasta sínum, Montel McKenzie, sem er hálfatvinnumaður í fótbolta og þekktur úr sjónvarpsþættinum Love Island.

Ekki hefur komið fram hversu lengi Luiz og Duda hafa verið saman eða hvort þau kynntust áður þegar Luiz var á láni hjá Nottingham Forest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Í gær

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Í gær

Gerrard spáir því að þessir maður missi vinnuna – Telur það ekki sanngjarnt

Gerrard spáir því að þessir maður missi vinnuna – Telur það ekki sanngjarnt
433Sport
Í gær

Goðsögn hjá Arsenal segir sárt að horfa á liðið þessa dagana

Goðsögn hjá Arsenal segir sárt að horfa á liðið þessa dagana