fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Tanja gerir upp tímabil Öfga – „Öfgar áttu ekkert að vera einhver svona nafngreiningarmaskína“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. mars 2026 12:00

Tanja Mjöll Ísfjörð Magnúsdóttir. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fólk var að hringja í okkur til að fá ráðgjöf en við þurftum bókstaflega að labba inn bakdyramegin […] Við vorum aldrei nefndar, það viðurkenndi enginn sem nýtti okkar aðstoð að þau væru að tala við Öfgar.“ segir Tanja Mjöll Ísfjörð í hlaðvarpinu Karlmennskan þar sem hún gerir meðal annars upp tímann sem aðgerðahópurinn Öfgar var starfandi. „Það sem mig langar eiginlega mest svona að kreditera okkur fyrir er hvað við vorum agalega duglegar og samviskusamar og unnum mjög mikla vinnu sem fólk fattar ekki.“

Tanja Mjöll telur að nú sé kominn tími til að færa fókusinn frá þolendum yfir á gerendur ofbeldis. „Ég vil tala um að þeir eru alls konar og, triggerandi fyrir mig að segja, en margir af þessum mönnum eru góðir við vini sína og hinn og þennan en svo eru þeir ofbeldismenn.“

Tönju Mjöll var útskúfað úr samfélagi sínu og heimabæ eftir að hafa sagt frá og tilkynnt ofbeldi af hálfu lögreglumanns. Augngotur, skilaboð og hótanir leiddu Tönju Mjöll til Noregs þar sem hún býr enn með Nóa, manninum sínum, og tveimur ungum börnum þeirra. Tanja Mjöll hefur tekið virkan þátt í baráttu gegn ofbeldi í um áratug, þrátt fyrir að vera aðeins nýorðin 31 árs.

Birtu nöfn fjölda meintra gerenda

Verulega gustaði í kringum starfsemi Öfga einkum eftir nafnbirtingar á meintum gerendum ofbeldis.

„Þetta er oft bara toppurinn af ísjakanum það sem við vorum að koma fram með í fjölmiðla og við erum oft að taka þá, þú veist, dæmi hjá konum sem eru þær sem treysta sér áfram af því að ímyndaðu þér magnið af þeim sem treysta sér ekki áfram.“

Tanja segir frá því að Öfgar hafi ekki ætlað sér að standa í nafnbirtingum á meintum gerendum heldur aðeins fræða ungt fólk á TikTok.

„Öfgar áttu ekkert að vera einhver svona nafngreiningarmaskína eða eitthvað þannig. Þú veist, eins og fólk reyndi að segja.“

Pick-me gella sem varð femínisti

Í viðtalinu segir Tanja frá því að hafa ekki verið sérstaklega femínísk á menntaskólaárunum en kynjafræði hafi verið sem þyrnir í hennar augum.

„Ég fer þarna í kynjafræði hjá Hönnu Björgu sem ég var svo ósammála. Ég var að rífa kjaft. Ég er frá Húsavík og ég er frá Sauðárkróki og þar, alla vega þegar ég er að alast upp, þar er rosa mikil svona karlmennska og ég er ekkert alin upp í miklum femínisma.“

Tanja segir að hún hafi alls ekki ætlað sér að verða femínisti enda hafi femínismi verið óvinsæll og hún þráð viðurkenningu og vinsældir.

„Ég átti mitt pick-me gellu tímabil“ Það tímabil hafi tekið skjótan endi þegar hún varð sjálf fyrir ofbeldi: „Það var ekki fyrr en ég er sjálf beitt ofbeldi að þá sé ég þetta öðruvísi. Og þú veist, allt sem Hanna Björg var að segja og síðan það sem ég lendi í, ég fer að setja þetta allt saman og fatta óréttlætið og setti upp helvítis kynjagleraugun og ég hef ekki tekið þau niður síðan.“

Hægt er að horfa og hlusta á allan þáttinn á karlmennskan.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað

Erindi Heimis Más um stækkun hafnað
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum

Segist skorta þekkingu til að athuga frekar aðkomu Matvælastofnunar að málum sem varða slæma meðferð á dýrum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin

Moka inn peningum með því að veðja á stríðsátökin
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns

Svala segist standa með Hafdísi og sé sjálf þolandi sama manns