fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Spyr hvort Skeggi verði rannsakaður

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 12:30

Skeggi Ásbjarnarson. Mynd: Skjáskot Facebook-síða Rásar 1.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram fyrirspurn til Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um mál Skeggja Ásbjarnarsonar kennara og hvort ráðist verði í rannsókn á þeim. Eins og kunnugt er hefur Skeggi verið sakaður um að beita nemendur sína ofbeldi þar á meðal kynferðislegu.

Skeggi var kennari í Laugarnesskóla í Reykjavík á árunum 1943-1977 og stjórnaði lengi samhliða kennslustörfum sínum barnaþætti í Ríkisútvarpinu en síðustu árin sem hann lifði stjórnaði hann einnig þætti sem ætlaður var fullorðnum hlustendum.

Skeggi var landsþekktur og á yfirborðinu virtur og vel liðinn. Hann var því mærður þegar hann lést 1981 og sumir fyrrum nemendur hans hafa sagt hann hafa verið besta kennara sem þeir hafi nokkurn tímann haft.

Á síðari árum hafa hins vegar komið upp á yfirborðið frásagnir sumra fyrrum nemenda Skeggja sem hafa sakað hann um að hafa beitt sig ofbeldi en þegar kemur að kynferðislegu ofbeldi af hálfu Skeggja munu fyrst og fremst drengir hafa orðið fyrir því.

Ásakanir í garð Skeggja fengu byr undir báða vængi með útvarpsþáttaröð Þorsteins J. Vilhjálmssonar sem flutt var á Rás 1 árið 2022 en þar ræddi Þorsteinn meðal annars við menn sem lýstu kynferðislegu ofbeldi af hálfu Skeggja þegar þeir voru nemendur hans.

Nokkuð lítið hefur farið fyrir umræðu um Skeggja og þessar frásagnir fyrrum nemenda hans síðan þættir Þorsteins luku göngu sinni.

Sigmundur Ernir beinir því hins vegar til dómsmálaráðherra, í fyrirspurn sinni, hvort ráðherrann hyggst bregðast við óskum brotaþola Skeggja um að fram fari rannsókn á brotunum og ábyrgð skólayfirvalda á þeim tíma.

Einnig spyr hann ráðherran hvort til standi að tryggja að brotaþolar Skeggja fái sanngirnisbætur eins og fordæmi séu fyrir gagnvart brotaþolum sem átt hafi að njóta skjóls innan annarra opinberra stofnana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir