fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 10:30

Ölver. Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona hlaut fjögurra mánaða dóm, skilorðsbundinn til tveggja ára fyrir líkamsáras fyrir rúmum tveimur árum á Sportbarnum Ölveri. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Málið var höfðað með ákæru 15. janúar 2026 gegn ákærðu fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 3. febrúar 2024, á Sportbarnum Ölver að Álfheimum 74 í Reykjavík, kastað glerflösku í höfuð þolanda með þeim afleiðingum að hann yfirborðsáverka á höfði og tognun og ofreynslu á hálshrygg.

Þolandi gerði einnig kröfu um miskabætur að fjárhæð 600 þúsund krónur.

Ákærða játaði sök afdráttarlaust og samþykkti bótaskyldu. Við ákvörðun refsingar leit dómari til þess að brotið var hættulegt og tilviljun réði að afleiðingar urðu ekki enn alvarlegri en raunin varð. Var refsing þannig talin hæfileg með fjögurra mánaða dómi skilorðsbundnum til tveggja ára. Var konan einnig dæmd til að greiða 400 þúsund krónur í miskabætur og brotaþola 350 þúsund krónur í málskostnað, auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Morgunblaðið biðst afsökunar á dánartilkynningarklúðrinu og ætlar að endurskoða verkferla

Morgunblaðið biðst afsökunar á dánartilkynningarklúðrinu og ætlar að endurskoða verkferla
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Ragnar Freyr veltir fyrir sér hvort þetta hafi kostað hann starfið

Ragnar Freyr veltir fyrir sér hvort þetta hafi kostað hann starfið
Fréttir
Í gær

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá

Flugfélagið Vueling þarf að greiða níu íslenskum farþegum bætur – Kunnu ekki að lesa úr veðurspá
Fréttir
Í gær

Ragnar Freyr kannast ekki við tilboð um hærra starfshlutfall – „Hér er því farið með fleipur“

Ragnar Freyr kannast ekki við tilboð um hærra starfshlutfall – „Hér er því farið með fleipur“