
Eins og DV greindi frá síðastliðinn mánudag hefur umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu, eftir kvörtun foreldris, að Hafnarfjarðarbær þurfi ekki frekar en önnur sveitarfélög í landinu að útvega nemendum í grunnskólum ritföng. Bærinn segir að vegna sóunar hafi verið ákveðið að hætta því. Þó kom fram á heimasíðu bæjarins að hann útvegi nemendum ritföng og skilaboðin frá bænum virtust því misvísandi. Bærinn biðst afsökunar á þessu og heimasíðan hefur verið leiðrétt.
Sveitarfélög þurfa ekki að útvega grunnskólabörnum ritföng – Misvísandi skilaboð frá Hafnarfjarðarbæ
DV sendi Hafnarfjarðarbæ skriflega fyrirspurn vegna þessa misræmis og svör hafa nú borist.
Spurt var í fyrsta lagi til hvort Hafnarfjarðarbær útvegi nemendum í grunnskólum bæjarins öll nauðsynleg ritföng sem þeir þurfa að nota í skólanum:
„Hafnarfjarðarbær útvegar bækur og stílabækur. Allt nema skriffæri.“
Spurt var því næst að ef svo væri ekki hvort að bærinn hefði einhvern tímann útvegað nemendum ritföng. Ef svo væri á hvaða tímabili það hafi staðið yfir, hvenær hafi verið ákveðið að hætta því og hver hafi verið rökin fyrir þeim breytingum:
„Á tímabilinu 2018-2024 fengu nemendur öll námsgögn, þar á meðal skriffæri. Frá 2024 fá nemendur öll námsgögn utan skriffæra í skólanum. Snúið var frá ákvörðuninni vegna sóunar og óhagkvæmrar nýtingar opinberra fjármuna.“
Spurt var að lokum að ef svarið við fyrstu spurningunni væri nei hvers vegna stæði þá hið gagnstæða á heimasíðu bæjarins og hvort ekki væri óheppilegt að sveitarfélagið sendi foreldrum grunnskólabarna í bænum svo misvísandi skilaboð:
„Texti hefur verið uppfærður. Við höfum þegar breytt heimasíðunni i samræmi við þessa ákvörðun og biðjumst afsökunar á því að það hafi ekki verið gert fyrr.“