fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fréttir

Barna- og ungmennabókahöfundar verða áberandi í erlendri kynningu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 14:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á þessu ári leggur Miðstöð íslenskra bókmennta áherslu á íslenskar barna- og ungmennabækur í erlendu kynningarstarfi. Markmiðið er að vekja athygli á höfundum sem skrifa fyrir börn og ungmenni, kynna höfundaverk þeirra fyrir erlendum útgefendum og auka útbreiðslu verkanna erlendis. 

  • Nýtt kynningarrit um íslenska barna- og ungmennabókahöfunda
  • Þátttaka í barnabókamessunni í Bologna
  • Aukinn stuðningur við þýðingar barna- og ungmennabóka á erlend mál

Íslenskir barnabókahöfundar hafa þegar vakið athygli víða erlendis og verk þeirra verið þýdd á ýmis tungumál, þar má nefna höfundana Áslaugu Jónsdóttur, Ævar Þór Benediktsson, Arndísi Þórarinsdóttur og Rán Flygenring.

Nýtt kynningarrit um barna- og ungmennabókahöfunda kemur út í mars og verður lagt til grundvallar í erlendri kynningu á vegum Miðstöðvarinnar, meðal annars á barnabókamessunni í Bologna í apríl, einnig í Gautaborg í september og Frankfurt í október.

Af þessu tilefni mun Miðstöðin jafnframt veita útgefendum verkanna styrki til þýðinga og kynningar á íslenskum barna- og ungmennabókum erlendis. Því verða veittir styrkir sem nema 70% af þýðingakostnaði barna- og ungmennabóka (að hámarki 500.000 kr.). Einnig verður hægt að sækja um hluta af prentkostnaði á myndríkum barnabókum, að því gefnu að umsóknirnar uppfylli þær kröfur sem Miðstöð íslenskra bókmennta gerir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“

Dæmdur fyrir að áreita fjölda 11-13 ára stúlkna á Snapchat- „Hvernig ertu svona falleg ekki eldri en þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg