fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
Fréttir

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. júní 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómari hefur vísað máli tónlistarkonunnar Bríetar gegn lagahöfundinum Pálma Ragnari Ásgeirssyni og þrotabúi Líms og varahluta (áður Rok Records) frá dómi vegna verulegra ágalla á kröfugerð. Tónlistarkonan hefði breytt kröfum sínum töluvert frá því að hún lýsti almennri kröfu í áðurnefnt þrotabú.

Bríet og Pálmi hófu samstarf árið 2018 þegar tónlistarkonan gaf út sína fyrstu smáskífu. Næstu fjögur árin samdi tvíeykið saman fjölda laga sem er flest að finna á plötunni Kveðja, Bríet. Þar á meðal eru nokkur af þekktustu lögum Bríetar á borð við Esjuna, Rólegur kúreki og Flugdreki.

Tónlistarkonan telur sig hafa verið hlunnfarna í samstarfinu við Pálma og krafðist þess að fá helming af ætluðum streymistekjum af lögunum sem hún og Pálmi gerðu saman. Skiptastjóri hafði hafnað kröfum hennar þar sem ágreiningur væri uppi um eignarhald hljóðritanna. Þá endaði málið hjá dómstólum og þar breytti Bríet kröfugerð sinni og krafðist heldur viðurkenningar á því að hún ætti tilkall til helmings allra tekna sem hefðu skapast eða gætu skapast í framtíðinni af sölu, miðlun og dreifingu hljóðritanna.

Pálmi krafðist frávísunar með vísan til þess að kröfur Bríetar væru óskýrar og að eins hefði þeim verið breytt undir rekstri málsins. Dómari féllst á það með Pálma að verulegir ágallar væru á kröfugerðinni. Kröfur væru óskýrar og ekki studdar nægjanlegum gögnum. Þrátt fyrir að Bríet hefði reynt að ráða bót á þessum annmörkum við munnlegan flutning á málinu hefðu þær breytingar komið of seint fram.

Vísaði dómari svo til þess að samkvæmt lögum um dómsmál sem varða gjaldþrotaskipti þá eigi dómari að leysa úr kröfum sem gerðar hafa verið í þrotabú. Hér hafi Bríet gert kröfu í skiptabúið um tiltekna fjárhæð en fyrir dómi var skyndilega um viðurkenningarkröfu að ræða sem skiptastjóri hafði þá ekki tekið afstöðu til. Eins hafi Bríet gert kröfu um hlutdeild í rétthafagreiðslum í tengslum við notkun laga hennar og Pálma í sjónvarpsþáttum, kvikmyndum og auglýsingum. Dómari tók fram að þessari kröfu hafi engin sundurliðun fylgt um hvaða þætti, myndir eða auglýsingar væri um að ræða.

Þar með var málinu vísað frá dómi án þess að dómari tæki efnislega afstöðu um mögulegan rétt Bríetar til streymistekna af lögum hennar. Þess í stað þarf tónlistarkonan að greiða Pálma 700 þúsund krónur í málskostnað og 200 þúsund til þrotabúsins. Úrskurðurinn var kveðinn upp þann 1. júní í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Deilunum er þó ekki lokið því Bríet hefur eins gert kröfu um að fá eignarrétt sinn yfir tilteknum upptökum viðurkenndan. Sú krafa verður tekin fyrir í öðru máli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“
Fréttir
Í gær

Sjúkt athæfi – Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð

Sjúkt athæfi – Kastaði kettlingum út um bílglugga á ferð
Fréttir
Í gær

Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“

Martha um Sjálfstæðisflokkinn – „Flokkurinn of oft virst vera í grímulausri hagsmunagæslu fyrir fáa og valdamikla hópa“
Fréttir
Í gær

Segir Vilhjálm ekki byrja vel – „Tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum“

Segir Vilhjálm ekki byrja vel – „Tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum“
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur – „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur – „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“