

Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hitti fjölskyldu Henry Nowak í Downingsstræti nú síðdegis. Mikil reiði hefur blossað upp í Bretlandi í kjölfar dóms yfir morðingja Nowak þegar afhjúpuð var upptaka úr búkmyndavél sem sýnir lögreglu neita að trúa að hann hafi verið stunginn og handtaka hann fyrir upplogna líkamsárás.
Líkt og DV hefur fjallað um var hinn 23 ára gamli Vickrum Digwa var dæmdur til 21 árs fangelsi fyrir að myrða hinn 18 ára gamla Henry Nowak í Southhampton á Englandi 3. desember síðastliðinn. Digwa sagði lögreglu að Nowak hafi verið með kynþáttafordóma í sinn garð og meitt sig. Málið hefur orðið vatn á myllu þeirra sem telja lögreglu í Bretlandi bera sig öðruvísi að í kringum minnihlutahópa, þá hafa verið fjölmenn mótmæli fyrir utan lögreglustöðvar í Southampton.
Sjá frétt: Allt á suðupunkti eftir dóminn á morðingja Henry Nowak
Auðkýfingurinn Elon Musk hefur gagnrýnt yfirvöld í Bretlandi harðlega vegna málsins og boðist til að greiða fyrir málshöfðun á hendur lögreglu. Starmer ræddi við blaðamenn á York í morgun og hefur Independent eftir honum að skilaboð Musk eigi ekkert erindi í umræðuna þar í landi. „Við áréttum hvernig land við erum, því að Musk, hefur enn og aftur, verið að skipta sér af pólitíkinni í landinu og reyna að skapa sundrungu,“ sagði Starmer. „Við Bretar erum skynsamt og umburðarlynt fólk. Þegar upp koma hræðileg mál, eins og mál Henry Nowak, þá eru viðbrögð okkar yfirveguð, eins og fjölskylda hans hefur sýnt.“

Fjölskylda Nowak hefur biðlað til fólks að nýta ekki morð Henry í pólitískum tilgangi, heldur einungis til að berjast gegn hnífaglæpum. Þrátt fyrir það hafa stjórnmálamenn víða um heim vakið athygli á málinu og jafnvel sagt það snúast um að innflytjendur grafi undan öryggi fólks. Þar á meðal Marta Czech, meðlimur Sambands pólsku krúnunnar, sem kallaði eftir því að fólk af pólskum uppruna fengi vernd, en faðir Nowak er ættaður frá Póllandi. „Það er öllum stjórnmálamönnum sama um hagsmuni Pólverja,“ hefur Guardian eftir henni.
Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, var harðlega gagnrýndur fyrir að neita að fordæma mótmælin í Southampton, Matt Chorley fréttamaður BBC fór hins vegar rangt með ummæli Farage og sagði hann hafa kallað eftir „hvítri, kaldri reiði“ en ekki „hreinni, kaldri reiði“, hefur Chorley beðið hann afsökunar.
Christi Hill, sem starfaði sem lögreglukona í Southampton, segir að hún hafi þurft að flýja heimili sitt og sé í felum eftir að nafni hennar var dreift á samfélagsmiðlum sem ein þeirra sem handtók Nowak. Daily Mirror segir frá yfirlýsingu hennar í dag þar sem Hill bendir á að hún hafi hætt störfum í apríl 2024, löngu áður en atburðirnir gerðust.
„Í dag er nafn mitt og mynd í dreifingu á samfélagsmiðlum, og núna í gervigreindarforritum eins og Grok, þar sem sagt er ranglega að ég hafi tekið þátt í handtöku Henry Nowak,“ segir í yfirlýsingunni.
„Ruglingurinn virðist stafa af því að mynd af mér var birt í tengslum við viðurkenningu fyrir hugrekki. Sú mynd, sem sýnir einnig fyrrum vinnufélaga sem hefur líka ranglega verið nafngreindur, er í dreifingu og ranglega sögð vera í tengslum við þetta mál.“