fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Sakfelldur fyrir umsáturseinelti – Hefur verið með þráhyggju gagnvart sömu konunni í 14 ár

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 2. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt mann fyrir umsáturseinelti. Hann setti sig tvívegis í samband við konu með því að senda henni tvær vinabeiðnir á TikTok og hann sendi sambýliskonu hennar eina vinabeiðni á TikTok og aðra á Instagram. Einnig var hann ákærður fyrir að aka tvisvar bíl um bifreiðastæði við vinnustað konunnar.

Mannlíf greindi fyrst frá en dóm málsins má lesa hér.

Hinn ákærði hefur áður sætt nálgunarbann gagnvart konunni og hann hefur áður verið dæmdur fyrir umsáturseinelti gagnvart henni. Segir í dómi að hann hafi haft þráhyggju gagnvart konunni í 14 ár.

Maðurinn játaði sök sem var metið honum til refsimildunar. Var hann dæmdur í tíu mánaða fangelsi, en þar af eru sjö mánuðir skilorðsbundnir. Hann var dæmdur til að greiða brotaþola 250 þúsund krónur í miskabætur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti