Ráðist var á erlendan ferðamann fyrir utan hótel í hverfi 101 og hann rændur, skömmu siðar var gerandi handtekinn og viðurkenndi hann verknaðinn og vísaði á verðmætin sem hann hafði rænt.
Kemur þetta fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir næturvaktina, frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun.
Einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa verið til vandræða við lögreglustöðina við Hverfisgötu. Ítrekað hafði verið reynt að fá manninn til að yfirgefa svæðið en án árangurs og hann því handtekinn.
Annar var handtekinn í hverfi 101 þar sem hann var með hníf, sá var fluttur á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekinn af honum og í framhaldi var honum sleppt.
Sá fjórði var síðan handtekinn vegna líkamsárásar og vistaður í fangaklefa.
Í hverfi 221 í Hafnarfirði var tilkynnt um mann í mjög annarlegu ástandi. Maðurinn var ósjálfbjarga sökum ölvunar og gat ekki vísað lögreglu á heimili sitt, hann vistaður í fangaklefa.