fbpx
Laugardagur 12.október 2024
Fréttir

Sólveig segir Elvar ljúga – Skuldi skjólstæðingum Eflingar tvöfalt meira en hann viðurkennir

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. september 2024 17:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir veitingamanninn Elvar Ingimarsson, sem á og rekur veitingahúsið Ítalíu og Geitina í Garðabæ, ljúga í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum fyrr í dag. Í yfirlýsingu segist Elvar skulda starfsfólki sínu um 2 milljónir króna en Sólveig Anna segir í færslu á Facebook-síðu sinni að það standist ekki skoðun.

Sjá einnig:  „Afar þungbært að stéttarfélagið Efling kjósi að efna til mótmæla fyrir utan veitingastað okkar og persónugera þau með myndum af mér“

„Það er alrangt. Á þessari stundu eru 3,8 milljónir hjá lögmanni í innheimtu fyrir hönd fólks sem leitað hefur til Eflingar vegna launaþjófnaðar Elvars. Jafnframt eru önnur mál í vinnslu á skrifstofu Eflingar. Einnig er það svo, eins og fram kom í tilkynningu Eflingar í gær, að vegna þeirrar háttsemi Elvars að skrá ekki tíma starfsfólks, gera ekki ráðningarsamninga eða afhenda launaseðla, er fyrir mörg af fórnarlömbum hans afskaplega erfitt að afla gagna svo að hægt sé að gera kröfu eða senda mál áfram til lögmanns. En ljóst er að þær upphæðir sem að Elvar hefur svikið starfsfólk um eru háar, og að svikin hafa haft mikil og þungbær áhrif á líf þeirra sem fyrir þeim hafa orðið,“ skrifar Sólveiga Anna í færslunni.

Í áðurnefndri færslu Elvars segir hann rekstrarerfiðleika sína stafa meðal annars af því að hann hafi neyðst til að flytja Ítalíu á nýjan stað eftir að eigandi húsnæðis við Laugaveg ákvað að endurnýja ekki leigusamninginn. Sólveig Anna gefur ekki mikið fyrir þessar útskýringar.

„Það er leitt að Elvar skuli kjósa að senda fjölmiðlum rekstrar-áfallasögu sína, en tilgangurinn virðist fyrst og fremst vera að grafa undan trúverðugleika þeirra sem stigið hafa fram og sagt frá ömurlegri framkomu hans, frekar en að sjá sóma sinn í að greiða fólki launin sem hann hefur haft af þeim,“ skrifar verkalýðsforinginn. Deilir hún svo reynslusögum fyrrum starfsmanna Elvars en þær má lesa hér fyrir neðan.

Vitalii Shybka, 24 ára gamall Eflingarfélagi frá Úkraínu:

„Ég var ráðinn til starfa á veitingastaðnum Ítalíu í desember 2023. Ég var mjög ánægður með að hafa landað vinnunni en sú ánægja bráði fljótt af mér. Eftir að hafa unnið í mánuð fékk ég ekki greidd laun. Ég var tilneyddur að slá lán hjá vinum til að greiða leigu og kaupa í matinn.
Svona gekk þetta í hverjum einasta mánuði, rekstraraðilarnir greiddu ekki laun og ég neyddist til að fá lán. Þegar ég ræddi við rekstrarstjóra Ítalíu vísaði hann á Elvar [Ingimarsson], sem vísaði á bókarann, sem aftur vísaði á Elvar.

Umræddur Elvar sagði iðulega þegar ég ræddi við hann að ég ætti að prófa að setjast í hans stól, það væru einfaldlega engir peningar til að greiða mér laun.
Þetta hafði allt mjög vond áhrif á líf mitt. Vegna þessara fjárhagsvandræða komu brestir í samband mitt við kærustu mína sem ollu því að endingu að sambandinu lauk. Ég fann ekki aðra vinnu um töluvert langan tíma sökum þess að ég varð þunglyndur og neyddist til að sækja mér aðstoð fagfólks. Ég hætti störfum 26. maí og hef enn ekki fengið greitt að fullu.“

Erik Krištovčo, 26 ara gamall Eflingarfélagi frá Slóvakíu:

„Mér var boðið starf árið 2023 sem vaktstjóri á veitingastaðnum Antico, en ég hafði áður unnið þar í aukavinnu með fram öðru starfi. Ég samdi um laun og vinnutíma en fékk aldrei ráðningarsamning, þrátt fyrir að hafa margsinnis gengið eftir því. Ég hafði þó ekki of miklar áhyggjur því að laun voru greidd með reglulegum hætti, en þó raunar aldrei á útborgunardegi heldur alltaf aðeins síðar. Það var auðvitað mjög óþægilegt sökum þess að það gerði mér erfitt fyrir með að borga leigu.

Eftir nokkurn tíma kom hins vegar í ljós að staðgreiðsla skatta sem dregin hafði verið af mér hafði ekki verið borguð til hins opinbera. Þá hafði persónuafsláttur minn verið ofnýttur frá þeim tíma að ég var í aukavinnu á Antico, þrátt fyrir að ég hefði óskað þess skýrt að ekki ætti að nýta hann þar yfirhöfuð.

Þetta olli mér miklum áhyggjum og reiði enda skuldaði ég nú Skattinum skyndilega um 550 þúsund krónur. Sökum þess að ég var að hefja nám hætti ég í starfinu 27. janúar síðastliðinn, skuldugur og án þess að hafa fengið greitt fyrir vinnu mína síðasta mánuðinn.

Ég fór margsinnis á fund Elvars [Ingimarssonar] og krafðist þess að laun yrðu greidd. Svarið var yfirleitt á þá leið að það yrði gert daginn eftir. Nú, 8 mánuðum síðar, hefur ekkert gerst í þeim málum og í sms-samskiptum við Elvar staðfesti hann við mig að hann hygðist ekki greiða mér þau laun sem mér ber, hvorki nú né síðar.“

Eflingarfélagi sem kýs að koma fram undir nafnleynd á þrítugsaldri frá EES-ríki:

„Ég vann í einn og hálfan mánuð sem þjónn á veitingastaðnum Ítalíu síðastliðið vor. Ég fékk hins vegar ekki greidd laun fyrir apríl mánuð og eftir að hafa beðið þar til 5. maí eftir launagreiðslum ákvað ég að hætta þar störfum. Það gerði ég líka eftir að hafa heyrt frásagnir annarra starfsmanna sem lýstu því að þeir hefðu ekki fengið greidd laun að hluta eða öllu leyti, í sumum tilfellum svo mánuðum skipti. Ógreidd laun þeirra sumra voru að því er mér var sagt allt að ein milljón króna. Til þessa dags hef ég enn ekki fengið greidd að fullu þau laun sem ég á rétt á. Um 40 prósent vantar upp á að svo hafi verið.“

Eflingarfélagi sem kýs að koma fram undir nafnleynd á þrítugsaldri frá EES-ríki:

„Ég vann á veitingastaðnum Ítalíu í júlí og ágúst árið 2023. Ég fékk greitt mjög lágt yfirvinnukaup og ég fékk ekki greitt yfirvinnukaup þegar ég vann á rauðum dögum heldur aðeins dagvinnukaup. Ég hef aldrei fengið sundurliðað yfirlit yfir vinnutíma mína en ég vann mjög mikla yfirvinnu, yfir 50 tíma í júlí. Þá var einnig dregið af mér félagsgjald í Eflingu sem var hins vegar aldrei greitt til stéttarfélagsins.

Að síðustu er rétt að nefna að yfirmaður á Ítalíu, og meðeigandi fyrirtækisins að því mér var sagt, var sínkt og heilagt að bjóða mér út í drykk, sem mér þótti mjög óþægilegt í ljósi þess að hann var bæði yfirmaður minn og mun eldri en ég.“

Eflingarfélagi sem kýs að koma fram undir nafnleynd á fertugsaldri frá EES-ríki:

„Ég sá auglýst á Alfreð að verið væri að leita að fólki í aukavinnu svo ég ákvað að prófa og fór á Ítalíu. Þar var mér sagt að þau vildu að ég tæki reynsluvakt, að hámarki fjórar klukkustundir, og í staðinn fengi ég gjafakort að upphæð 10 þúsund krónur. Ég sagðist ekki vinna frítt en vildi gjarnan prófa starfið og það var samþykkt. Ég vann þar í þrjá tíma 23. mars síðastliðinn og að því loknu sagði vaktstjórinn að hann væri ánægður með mig og ég fengi starfið.

Eftir það reyndi ég ítrekað að hafa samband við stjórnendur til að spyrjast frekar fyrir um kjör og starfstíma en án árangurs. Mér var sagt að sá sem sæi um ráðningar hefði ekkert virkt símanúmer!

Mín skoðun er að þetta hafi verið skipulögð svik. Ég heyrði af því að verið væri að taka fjölda fólks í prufur og þeim væri launað með gjafakorti, sem svo reyndist ekki einu sinni vera upp á umræddar 10 þúsund krónur heldur aðeins 5 þúsund. Ég tók ekki við því og krafðist þess að fá greitt fyrir mína vinnu. Það hef ég ekki fengið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess.“

Eflingarfélagi sem kýs að koma fram undir nafnleynd á fertugsaldri frá Úkraínu:

„Ég vann á veitingastaðnum Il Antico frá febrúar til maí árið 2023. Á þeim tíma drógust launagreiðslur úr hófi sem olli því að ég og eiginkona mín neyddumst til að flytja úr leiguíbúð sem við bjuggum í og í eitt leiguherbergi, því við gátum ekki staðið skil á leigunni. Ég fékk ekki greidd laun fyrr en löngu eftir að mér hafði verið sagt upp störfum og hefur þetta valdið miklum vandkvæðum mínu lífi.
Í desember á síðasta ári hafði rekstrarstjóri Antico samband við mig og bauð mér starf aðstoðarkokks á veitingastaðnum Ítalíu. Hann fullvissaði mig um að engin vandamál yrðu með greiðslu launa í þetta sinn. En því miður endurtók sagan sig. Launagreiðslur töfðust ítrekað og í hvert skipti sem ég innti Elvar [Ingimarsson] eftir því hvenær ég fengi greidd launin mín var svarið annað hvort á morgun (sem aldrei gerðist) eða þá að hann hefði enga fjármuni til að setja í launagreiðslur og ég ætti kannski bara að taka við hans starfi.
Ég vann á veitingastaðnum Ítalíu til 26. júní síðastliðinn. Enn sem komið er hef ég ekki fengið greidd laun að fullu fyrir maí mánuð og engin laun fengið fyrir júní.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Er ríkisstjórnin að springa? Segir að Bjarni gæti freistast til að boða til kosninga á næstu dögum

Er ríkisstjórnin að springa? Segir að Bjarni gæti freistast til að boða til kosninga á næstu dögum
Fréttir
Í gær

Maður hátt á sjötugsaldri dæmdur í 20 mánaða fangelsi

Maður hátt á sjötugsaldri dæmdur í 20 mánaða fangelsi
Fréttir
Í gær

Guðbjörn um dóminn yfir Albert – „Sæti fótboltastrákurinn er enn þarna úti og sennilega enn nauðgandi“

Guðbjörn um dóminn yfir Albert – „Sæti fótboltastrákurinn er enn þarna úti og sennilega enn nauðgandi“
Fréttir
Í gær

Minnist banaslyssins í Breiðamerkurjökli og hraunar yfir ferðaþjónustufyrirtæki – „Margur verður af aurum api“

Minnist banaslyssins í Breiðamerkurjökli og hraunar yfir ferðaþjónustufyrirtæki – „Margur verður af aurum api“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán skiptir um skoðun og vill vera áfram

Stefán skiptir um skoðun og vill vera áfram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fréttamaður fékk fljúgandi rusl í andlitið – Áhorfendur CNN mjög áhyggjufullir | Myndband

Fréttamaður fékk fljúgandi rusl í andlitið – Áhorfendur CNN mjög áhyggjufullir | Myndband