fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Pósturinn með nýjan vef fyrir fyrirtæki

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 3. júní 2024 19:11

Sigríður Heiðar, forstöðumaður söludeildar Póstsins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pósturinn hefur nú opnað nýjan fyrirtækjavef sem nefnist Fyrirtækjasíður. Um er að ræða þjónustuvef fyrir öll fyrirtæki. Þróun nýja vefsins fór meðal annars fram í samstarfi við viðskiptavini sem komu á framfæri ýmsu sem mætti bæta við eða breyta, eins og segir í tilkynningu.

Sigríður Heiðar, forstöðumaður söludeildar Póstsins, fagnar þessum áfanga. Hún segir nýjan þjónustuvef bjóða upp á ýmsa möguleika. „Nýtt kerfi veitir okkur meiri sveigjanleika til að bregðast fljótt við óskum viðskiptavina. Til dæmis vildu viðskiptavinir okkar geta pantað bíl með skömmum fyrirvara inni á vefsvæðinu og við því var orðið.“

Fyrirtækin geta séð sendingar á leiðinni til sín og nú er mun auðveldara að skrá og rekja sendingar. Svo er möguleiki fyrir hvert fyrirtæki að stilla verð, sum kjósa að hafa sendingarkostnaðinn innifalinn ef keypt er fyrir ákveðna upphæð svo dæmi sé tekið.

Minni handavinna

„Við leitum stöðugt leiða til að spara viðskiptavinum tíma og handavinnu. Það er margt sem fellur undir þetta á nýja vefnum en gott dæmi er sá möguleiki að geta afritað sendingar. Þá þurfa netverslanir ekki að skrá allar upplýsingar aftur inn í kerfið ef viðskiptavinurinn er til dæmis einungis að skipta í rétta stærð,“ segir hún.

Enn fremur segir hún fyrirtækjaeigendur ánægða með að geta stýrt aðgangi starfsmanna og skilgreint mismunandi starfstöðvar. „Þetta eru allt nýjungar sem mælast vel fyrir og þau fyrirtæki sem hafa fært sig yfir á Fyrirtækjasíðurnar eru sérlega ánægð með viðmótið, segja það gagnsætt og þægilegt í notkun.“

Nú er vefurinn kominn í almenna notkun og segir Sigríður notendur vera duglega að veita endurgjöf. „Kerfið er í stöðugri þróun og við höldum ótrauð áfram. Næst á dagskrá er að bæta Tollamiðlun inn á vefinn en stefnan er að hafa allt sem varðar póstmálin á einum stað og einfalda viðskiptavinum okkar lífið.“

Vakandi fyrir nýjungum

Verslun hefur færst að miklu leyti yfir á netið á örskömmum tíma svo bregðast verður skjótt við. „Pósturinn hefur verið að þróa og uppfæra alla sína ferla í stafrænu umhverfi og segja má að Fyrirtækjasíðurnar séu svar við þessum hröðu breytingum. Við þurfum að vera sveigjanleg, vakandi fyrir nýjungum og ekki síst að huga að öryggi í öllu sem varðar póstsendingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta