33 ára gamall Íslendingur var handtekinn 8. júní vegna líkamsárásar og ráns í dönsku borginni Hróarskeldu.
Kemur þetta fram í tilkynningu lögreglunnar á Mið- og Vestur Sjálandi, Vísir greinir frá í dag.
Aðfararnótt 8.júní barst lögreglu tilkynning frá 37 ára karlmanni sem kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás af hálfu ókunnugs karlmanns í Ved Ringen hverfinu. Sagðist maðurinn hafa verið á gangi á opnu svæði í átt að lestarstöð borgarinnar þegar hann mætti árásarmanninum. Árásarmaðurinn hafi barið hann í höfuðið og sparkað í líkama hans áður en hann hvarf á brott með derhúfu brotaþola með sér.
Brotaþolinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Árásarmaðurinn fannst skömmu síðar skammt frá vettvangi og reyndist hann vera undir áhrifum áfengis. Var hann fluttur á lögreglustöð þar sem hann gekk undir læknisskoðun fyrir yfirheyrslu. Var manninum sleppt að lokinni yfirheyrslu og hefur hann verið kærður vegna málsins.